Úlfur WI 3

Leið númer 1 á mynd.

Leiðin er í Eyrardal og er önnur alvöru íslínan frá hægri inni í dalnum. Þæginleg upphitunarleið.

FF: Heiða Jónsdóttir og Jón Smári Jónsson. WI3, 50m.

Crag Dýrafjörður
Sector Eyrardalur
Type Ice Climbing
Markings

12 related routes

(Icelandic) Eyrarkerling

Sorry, this entry is only available in Icelandic. For the sake of viewer convenience, the content is shown below in the alternative language. You may click the link to switch the active language.

Eyrarkerling – 5.8
.
50 m
.
Fantafínt drangaklifur upp eftir norðvesturöxl Eyrarkerlingar í Eyrardal í Dýrafirði. Klifrað var í tveimur spönnum, í furðu heillegu bergi. Ekki gera ykkur þó grillur um að ekki þurfi að moka sum staðar eftir festum og að glíma við stöku mosabarð.
.
Aðkoma: Lagt er við veginn á Sveinseyri, en á þokkalegum bílum er hægt að aka nokkur hundruð metra upp eftir slóða upp á bakkann yfir Sveinseyri, slóðinn fjarar þó fljótt út við litla tjörn. Þaðan er rúmlega tveggja kílómetra gangur upp að kerlingunni sem er í um 400 metra hæð.
Sé gengið að Kerlingunni að austan (styðsta leið) er farið upp bratta skriðu að litlu hafti undir söðlinum milli kerlingarinnar og Kerlingarfjalls. Brölt er upp í gegnum litla gjótu í lausu bergi undir stórt grettistak og upp í söðulinn sem kallast Klofi, gott er að hafa varann á í gjótunni. Hægt er að koma upp í Klofa að vestan og er þá hægt að sleppa við gjótuna, en skriðan er jafn löng og brött þeim megin og gangan örlítið lengri. Úr Klofa þarf að brölta upp 3 m haft upp að sjálfri Kerlingunni, yfir því hafti er svo hægt að hliðra eftir þokkalegri syllu vinstra megin og út á norðvesturhrygginn, en bograst þarf undir kerlinguna þar sem grafist hefur undan henni.
.
Spönn 1: 5.6 R 30 m Klifrið byrjar yst á norðvesturöxl kerlingarinnar og fylgir hryggnum að mestu upp á eina augljósa stallinn á Kerlingunni, í tæplega þrjátíu metra hæð. Lykilkafli spannarinnar er hér um bil í miðri spönn þar sem er stutt lóðrétt haft, en upp að því er lítið af tryggingum í boði, þó að berg sé gott til klifurs. Eftir það skána tryggingar lítið eitt og endar spönnin í tveggja fleyga akkeri yfir stóra stallinum.
.
Spönn 2: 5.8 20 m Stutt spönn, í frumferð var farið beint upp nefið yfir akkerinu, klifrið er töluvert brattara en í grófinni vinstra megin, en bergið hér öllu betra og minna gróið. EK er í brattasta haftinu í um 6-10 m hæð, en hægt er að koma fyrir nokkrum góðum tryggingum hægra megin undir þakinu áður en lagt er í haftið. Flottar hreyfingar með óviðjafnanlegu útsýni niður þverhnípið undir hælunum. Lokahaft spannarinnar er svo eina raunverulega lausa bergið í leiðinni, en best er að hafa varann á í spilaborginni þar. Eftir það er nokkurra metra rölt upp að toppstrýtunni, þar sem er gamall línubútur með sigbínu. Ekki er ýkja mikið pláss á topphryggnum, og er nokkuð snúið að tilla sér á blátoppinn (strýtuna), enda þar ekki pláss fyrir meira en tæpa rasskinn í einu.
.
Sig: Eflaust er hægt að síga niður suðurvegginn alla leið niður að hliðrunarsyllunni, en vegna þess hve brött kerlingin er þeim megin, er vel mögulegt að maður muni hanga í lausu lofti úti yfir syllunni. Svo við kusum að síga niður leiðina aftur, með stoppi í millistansinum.
.
FF Sigurður A. Richter & Egill Ö. Sigurpálsson, 11. ágúst 2026
Engin ummerki voru um nokkrar mannaferðir á toppnum og ekki höfum við fengið staðfest að einhver hafi áður klifrað dranginn, en FF er auðvitað samt sem áður birt með þeim fyrirvara um að mögulega hafi einhver klifrað dranginn áður, og ef svo er þiggjum við að sjálfsögðu allar upplýsingar um fyrri ferðir með þökkum.

Grasleysa WI 3

Leið númer 16 á mynd.

Leiðin var ekki kláruð alveg upp á blátoppinn vegna broddavandræða.

FF: Ármann Ragnar Ægisson og Gísli Matthías Sigmarsson, 2013.

Right out of the fjord WI 5

Leið númer 13 á mynd.

FF: Dawn Glanc og Tim Emmett, 2013

Checking out seals M 7

Leið númer 12 á mynd.

Sama byrjun og á númer 11. Leiðin byrjar á boltalínu, M 7 og fer síðan til vinstri og upp þunnt kerti, WI 5+ klifur.

FF: Dawn Glanc og Tim Emmett, 2013

Seaweed M 7

Leið númer 11 á mynd.

Sama byrjun og á leið 12, eftir boltalínu M 7. Síðan beint upp í WI 5+ klifur.

FF: Dawn Glanc og Tim Emmett, 2013

Ego problem WI 6

Leið númer 10 á mynd.

FF: Dawn Glanc og Stanislav Vrba, 2014

Locals only WI 5+

Leið númer 9 á mynd

FF: Dawn Glanc, Rúnar Óli Karlsson og Sigríður Sif Gylfadóttir, 2013

 

Vargur WI 4

Leið númer 5 á mynd

Næsta leið til vinstri við Freka. Erfiður miðju kafli. Sigið niður.

FF: Árni Stefán Haldorsen, Sigríður Sif Gylfadóttir og Védís Ólafsdóttir. WI4, 50m.

Freki WI 4

Leið númer 4. á mynd

Næsta lína til vinstri við Fenri. Nokkuð þæginlegt klifur upp að stalli ca í miðri leið. Þaðan lá leiðin annað hvort til vinstri út fyrir risa regnhlíf eða beint upp og í gegnum hana. Nokkrir léttir metrar eftir það. Sigið niður.

FF: Ottó Ingi Þórisson og Katrín Möller. WI4, 40m.

Fenrir WI 4

Leið númer 3. á mynd

Næsta lína til vinstri við Garm. Létt brölt upp í hvelfingu þar sem hægt er að velja um bratt kerti eða að fara innar og undir lítið þak sem þarf svo að hliðra út fyrir. Nokkrir léttir metrar þaðan. Sigið niður.

FF: Árni Stefán Haldorsen, Sigríður Sif Gylfadóttir og Védís Ólafsdóttir. WI4, 50m.

Garmur WI 3+

Leið númer 2

Næsta lína til vinstri við Úlf (#1). Nokkuð jafnt klifur alla leið en örlítið snúnari efst.

FF: Árni Stefán Haldorsen, Sigríður Sif Gylfadóttir og Védís Ólafsdóttir. WI3/+, 50m.

Úlfur WI 3

Leið númer 1 á mynd.

Leiðin er í Eyrardal og er önnur alvöru íslínan frá hægri inni í dalnum. Þæginleg upphitunarleið.

FF: Heiða Jónsdóttir og Jón Smári Jónsson. WI3, 50m.

Leave a Reply