Stóridrangur
Stóridrangur er stærsti drangi Þrídranga, vestur af Vestmannaeyjum.
Saga drangans
Þrídrangar voru á einni fjölförnustu siglingaleið landsins og af þeim stafaði talsverð hætta í myrkri, þoku eða stormum. Því var ákeðið að ráðast í byggingu vita á Stóradrang, ef það væri mögulegt.
Árið 1938 ákváðu Alþingi og Vitamálastjórn að byggja vita á Þrídröngum, ef unnt væri. Árni Þórarinsson var fenginn til að hafa umsjón með byggingu vitans. Í dagbók Árna lýsir hann upphafi verkefnissins svona:
„Það fyrsta sem varð að gjöra var að Ieggja veg upp í dranginn, því það var ófært öllum, þó þeir væru fjallamenn.”
Hann fékk því þrjá vana klifrara frá Vestmannaeyjum til að klífa drangann og leggja þar “veg” með keðjum. Til verksins voru fengnir þeir Hjálmar Jónsson, Svavar Þórarinsson og Þorsteinn Sigurðsson.
“Það var farið með grjótbora, hamra, keðju og klemmur til að setja keðjuna fasta með. Þetta höfðu þeir allt með sér og ströng fyrirmæli um að fara varlega og bolta sig áfram upp ef með þyrfti.”
“Svo leggja þeir af stað upp og gengur allt vel þar til þeir eru komnir upp undir brún, þar slútir bergið framyfir sig og því engin handfesta og lítil fótfesta. Bjóst ég nú við að þeir tækju til við að bora fyrir boltum til þess að hafa þó að minnsta kosti fast fyrir fæturna, en þeir voru nú ekki að tefja sig á því, heldur leggst einn af þeim á fjóra fætur utan í bergfláann, svo skríður annar uppá bakið á honum og stendur með fætur á öxlunum á honum, svo klifrar sá þriðji upp þessa tvo, sem búnir voru að stilla sér upp, þá tekst honum að ná handfestu upp á brúninni og vega sig alveg upp.”
Hjálmar var neðstur á fjórum fótum, Svavar stóð ofan á Hjálmari og svo klifraði Þorsteinn upp þá tvo og náði að vippa sér upp á topp. Hann var með kaðal með sér (tó) svo að Hjálmar og Svavar gátu togað sig upp kaðalinn. Þetta var víst þekkt tækni sem þeir höfðu notað í öðru klifri í Vestmannaeyjum.
Árni fylgdist með þessu úr bátnum og lýsti upplifuninni svo:
“…en það eitt er víst að mér hefur aldrei liðið eins illa á ævinni, því ég bjóst við að allir þrír kæmu hrapandi niður. Mér fannst ég einn bera alla ábyrgð á þessu ferðalagi og hafði enga afsökun aðra en þá, að ég bað þá að fara öðruvísi að þessu,”
Á toppnum fundu þeir svo fallbyssukúlur en drangarnir höfðu verið notaðir sem skotmörk í æfingum danska sjóhersins. Ein kúla er föst í miðri austurhlið Stóradrangs og sjá má stórar holur á austurhlið Klofadrangs eftir þessar æfingar. Þeir töluðu um að þarna væri talsvert af fýl, 80-90 ungar og lítill gróður, aðeins af skarfakáli.
Keðjan sjálf var svo lögð á niðurleiðinni.
Árið 1939 var svo vitinn reistur á einum mánuði og sváfu smiðirnir á dranganum í tjöldum allan tímann á meðan byggingunni stóð. Verkstjóri á staðnum var Sigurður Pjetursson.
Til að hífa upp vistir, mannskap og byggingarefni var reistur gálgi úr stærðarinnar staurum og handsnúnu spili komið fyrir til að ná þessu öllu upp. Þetta er allt enn á sínum stað, óhreyft frá 1939.
“Norðvestan á drangsbrúninni er komið fyrir stórri rá til að hala upp efnið í vitabygginguna, matvæli verkamanna og annað það sem upp þarf að koma, því ekki er leiðin upp á drangann svo greið, að hægt sé að flytja farangur á annan hátt. Mörgum finnst nóg að fara þar upp laus og liðugur, þó nú sé búið að leggja þar “veg” eins og það heitir á máli fjallamanna…”
“Þrátt fyrir þessa vegalagningu hafa sumir, sem upp hafa þurft að fara, frekar kosið að fara sömu leið upp og farangurinn og efniviðurinn, en þó skal eg taka það fram, að þeir menn munu ekki hafa verið Vestmannaeyingar.”
“Allt dregið upp úr bátnum, enda þá komið spil til að draga upp með. Þetta var handsnúið spil og þar af leiðandi mikið erfiði að draga upp svo mikið af þungri vöru: svo sem sement, möl, sand, steypustyrktarjárn, timbur o. fl.”
Heildarkostnaður við vitabygginguna voru 30.000 kr. Vitinn var reistur í miðri seinni heimstyrjöld og búið var að panta ljós frá Danmörku. Danmörk var því miður hernumin af Þjóðverjum og því kom ljósið í vitann ekki
Árið 1940, þegar vitinn hafði verið reistur en ljósið ekki komið var svona fjallað um hann í Sjómannablaðinu Víking:
“Fyrir vestan og sunnan Vestmannaeyjar eru margir drangar, sker og boðar sem varast þarf. Einna þekktastir og mest umræddir eru Þrídrangar, mjög hættulegir fyrir siglingar til eyjanna, vegna þess, hve þeir eru í skipaleið og vegna skerjana sem vestur af þeim eru. Að þessu sinni sem oftar, sáust þeir ekki, vegna dimmviðris. Við þá hafa orðið mörg slys. Þar hefir nú verið reistur vitaturn, ómerkilegur fyrir það, að ekki hefir verið sett í hann ljósker enn þá. Mun hann vafalaust í framtíðinni verða vinur margra sjófarenda, þegar góður vilji og gjaldeyrismöguleikar hafa myndað með sér samtök, til að leysa þetta smámál, sem getur orðið lífspursmál margra sjófarenda.”
Árið 1942 fékkst svo loks ljós í vitann frá Bretlandi, vitinn þá búinn að standa tilbúinn en ónotaður í 3 ár.
Vitaljósið var knúið áfram af gasi. Tvisvar á ári þurfti að klifra upp keðjuna til að skipta um gashylki. Upp úr 1950 var þetta að einhverju leiti þjónustað með þyrlum en þó ekki öllu.
Árið 1977 var svo loks byggður þyrlupallur á dranganum. Varðskipið Týr var fengið til að leggja við drangana og öll steypan var hrærð þar um borð og slingað yfir með þyrlu. Steypan var sett í strigapoka og þeim staflað upp, þar sem ekki var mögulegt að slá upp steypumóti á þessu grófa undirlagi. Þó var gert mót um toppinn og þar steypt plata. Rör voru sett út frá toppplötunni og milli þeirra strengt net. Tilgangur netsins var að stækka þyrlupallinn aðeins, veita auka öryggi fyrir fólk og búnað sem kemur þarna með þyrlu. Núna er netið löngu farið og einhverjar stangana brotnar.
1993 var sett upp sólarsella og vitinn frá því knúinn á rafmagni frekar en gasi.
2001 var farið í viðhaldsferð þar sem vitahúsið var kústað með hvítu þéttiefni
2021 fór hljómsveitin Kaleo út í drangann og flutti lagið sitt Break my baby og gaf út tónlistarmyndband þar sem dranginn, vitinn og þyrlupallurinn spila stórt hlutverk
2024 fóru Garpur I Elísabetarsong og Jónas G. Sigurðsson út í drangann með þyrlu og gerðu um það þátt í sjónvarpsseríunni Okkar eigið Ísland
2026 fóru Garpur og Jónas aftur, en í þetta sinn með Andra Má Ómarsson og Guðmund Jónsson og klifrandi í það skiptið. Þáttur um klifrið mun birtast í næstu seríu af Okkar eigið Ísland.
Leiðarlýsing
Klifurleiðin hefst á suðurhlið drangans. Erfiðasti hluti klifursins er að komast úr bátnum og á drangann. Þar sem sjórinn skellur á berginu hafa allar misfellur veðrast í burtu og bergið er sleipt og þakið þara. Keðjan er orðin mjög þunn og það hafa brotnað partar af henni.
Neðsti hluti keðjunar er því nokkuð hátt uppi. Lausnin sem var notuð þegar drangurinn var klifinn 2026 var að bíða eftir háflóði og vera með línu bundna í krókstjaka. Krókstjakanum var krækt í keðjuna og svo júmmað upp línuna þar til að hægt var að klifra (og sjá hvað keðjan var þunn)
Keðjan er elt upp í einskonar stans, tvö járn sem hafa verið rekin inn í bergið. Árið 2024 var keðja úr þessum stansi og yfir í næsta járn ca 5 m til vinstri en nú stendur járnið þar stakt út úr veggnum. Árið 2024 lá keðjan líka niður frá þessum tveim járnum og utan um hornið í festingar þar, þetta hefur líka slitnað síðan og lafir nú keðjan beint niður í smá gróf
Frá staka járninu er þó nokkuð bil þangað til keðjan byrjar aftur en líklega var áður keðja þarna á milli. Það er ein örlítið snúin viðnáms-/jafnvægishreyfing þegar lagt er af stað frá járninu en annars er klifrið upp undir brún frekar þægilegt og minnir einna helst á leiðina Músastiginn á Hnappavöllum. 5.3- 5.4 frá fyrsta stans og upp undir brúnina ef einungis er klifrað á berginu, ef gripið er í keðjuna, þá léttara. Leiðin liggur skáhalt upp vesturhlið drangans og fylgir einskonar stalli eða veikleika í berginu.
Þó að klifrið sé tæknilega auðvelt, þá er allur dranginn úr móbergi. Vissulega mjög föstu móbergi en engu að síður molnar aðeins úr þegar klifrað er og því þarf maður að passa að treysta ekki um of á stök grip eða fótfestur.
Undir brún taka við ca 3 m af lóðréttu klifri, erfiðleikarnir hér eru ca 5.6-5.7 í fríklifri, léttara ef togað er í keðjuna. Fótfesturnar eru aðeins undir manni og klifrið því aðeins í fangið. Góð grip leynast þarna og þau eru vel innfeld og ættu ekki að brotna svo auðveldlega í burtu. Allur toppurinn er risa juggari.
Uppi á topp er best að gera akkeri í næstu járn sem halda keðjunni.
Heildar klifurlengd ca 45m, klifurhæðin ca 30-35m.
FF: Þorsteinn Sigurðsson, Hjálmar Jónsson og Svavar Þórarinsson, Vestmannaeyingar, 24 júní 1938
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1966
Sunnudagsblað Vísis 9. júlí 1939
Morgunblaðið 13. júlí 1939
Sjómannalaðið Víkingur 1. apríl 1940
Morgunblaðið 20 september 2009
| Crag | Vestmannaeyjar |
| Sector | Þrídrangar |
| Type | Alpine |
| Markings |
Video




























