0801852789

Forum Replies Created

Viewing 14 posts - 1 through 14 (of 14 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Fjallaskíði til sölu. #58188
    0801852789
    Member

    Sérsniðin skinn fylgja pakkanum.
    Einnig til sölu Scarpa spirit 3 fjallaskíðaskór. Verð 25000.
    Allt Saman á 70.000.

    in reply to: Hraundrangi -uppáferðasaga #57904
    0801852789
    Member

    6 júlí 2009
    Magnús Smári Smárason
    Gunnar Agnar Vilhjálmsson.
    3,5 Tími frá mynd við Staðarbakka og á mynd á toppnum.

    30-31 júlí.2009

    Magnús Smári Smárason
    Friðjón Snorrason
    Dofri Ólafsson
    Ingvar Leví Gunnarsson

    Farið frá Öxnadal og endað í Hörgárdal, einbíla en góður maður náði í okkur um 4 um morguninn. Dofri fékk grjót í fésið en kláraði broltið með andlitið vel blóðugt og bólgið nef.

    in reply to: Professionals at work #57345
    0801852789
    Member

    Norðurland kannast ekki við þessa kappa.

    fakk.

    in reply to: Skráning á telemark festival #56484
    0801852789
    Member

    Stefni á létta Þelamerkursveiflu, ekki stigið á síðan síðast gríðar stuð. Má skrásetja mig.

    in reply to: [ÓE] Fjallaskíðaskór #56090
    0801852789
    Member

    46-47, hvaða vax er best að nota undir þessa stærð =D

    Annars, Gummi er lang best að fara í Íslensku búðirnar finna skó sem henta fætunum á þér, flestir þessir alvöru fjallaskíðaskór eru komnir með svona “shake and bake” m.ö.o innri sokk sem aðlagar sig að fætinum.

    Eftir að þú hefur fundið skóin sem passar þér er svo bara að panta á netinu nýja skó.

    Þú mátt renna þér og ganga á tréskíðum en skórnir verða að vera 100% annars ertu með sár á allskonar stöðum aumur og getur ekki beitt þér eins og þú gætir.

    Kannski er þetta bara mínar dillur en ég er alfarið á móti kaupum á notuðum skóm til skíðamennsku nema fyrir einhver vetrarfrí í Versló. Þú getur verið á dýrustu skíðum í heimi en skórnir sem Jón Útí bæ er búin að laga að sýnum fæti gera fótunum á þér lífið leitt.

    Fjallaskíðaskór eru dýrir vegna þess að þeir eru hannaðir á 2 vegu s.s Göngu og Skíðun, sumir endast líka einstaklega ílla vegna þess að þeir eru að reyna ná vigtinni niður, minni vigt=minna efni í skónum= mun hraðara slit.

    Ef þú finnur ónotaða notaða skó sleppur þetta en ekki setja skíðaferilinn í hættu með að versla þér skó sem henta ekki 100% og enda á því að skíða brekkuna eins og timbruð Soffía frænka vegna þess að þú er komin með blæðandi sár á ristina.

    in reply to: Kerlingareldur #55512
    0801852789
    Member

    Snillingar.

    in reply to: Mission ársins? #55289
    0801852789
    Member

    Ábending Ágúst,
    Stefnan er á Lion traversuna s.s upp lion ridge og niður Hörnligrat
    Eiger leiðin mun vera Mitteledge

    in reply to: Ísklifur um helgina í stað festivals #55201
    0801852789
    Member

    Norðanmenn eru í gríðarfíling.
    Má segja að nett Aspen stemming leynist hér enda var bara celeb stemming í Akureyrarlaug áðan.
    Mjög gott skíðafæri í Hlíðarfjalli enda bætir í hvítagullið með hverjum deginum.
    Erum að fara fullt af liði í massífa fjallabjörgunaræfingu á Sunnudag sem verður tekin á “north face” Kerlingar þannig að súluliðið verður eflaust lítið í ísnum um helgina en eflaust hugur í einhverjum.

    Endilega komið með fréttir af aðstæðum.

    in reply to: klifur í dag #55008
    0801852789
    Member

    Er nokkuð viss um að við höfum ekki verið að FF þessa leið, en svona til að gefa henni einhveja gráðu held ég að hún gráðist sem WI4 en eflaust bæði hægt að komast erfiðari og léttari leiðir upp í hinum ýmsu aðstæðum. En gráðuna gef ég með fyrirvara um þekkingarleysi á því en samkvæmt wiki og oðrum lesningum á greinum um Water ice gráðun fellur hún vel inn í þann flokk.

    En flott klifur stefnum aftur í Múlan fyrir helgina.

    in reply to: Nýjar leiðir 2009-2010 #54999
    0801852789
    Member

    Ég og Jón Heiðar skelltum okkur í stóra fossin rétt sunnan við “Hart í bak” í Ólafsfjarðarmúla veit einhver nafnið á fossinum, helvíti hressandi klifur.

    in reply to: Ísklifurvettlingar. #54966
    0801852789
    Member

    Takk fyrir fín svör,
    Vitiði hvar maður getur fengið þessa Tegera vinnuvettlinga?
    Örugglega fínt að vera bara með 2 pör ef þetta er good stuff.

    in reply to: Nýtt akkeri á Hraundranga. #54344
    0801852789
    Member

    Millistannsin er held ég á sama stað en er samsettur úr 4 fleygum sem við skoðuðum og þeir virka alveg solid, þar er blár slingur sem er greinilega nýlegur ekkert veðraður, aðeins vinstra megin við aðalakkerið er svo annar fleygur sem einnig er alveg solid, og virkar sem backup fyrir þann sem tryggir.

    Stannsin sem við löguðum er sá sem er alveg í upphafi klifursinns þegar maður stendur á smá moldarhól og horfir niður í öxnadalinn þar var bara einn ryðgaður.

    Og nei sandsteinns fleygarnir hans Antons bíða betri tíma =)

    in reply to: Munkinn um helgina #54311
    0801852789
    Member

    Stefni á labbið á morgun og múnkaþvæling á sunnudag.

    in reply to: Miðnætursól á Hraundranga #54300
    0801852789
    Member

    Sæll Sigurður,

    Þessar 1-2 nettu klifurhreyfingar eru efst í skriðunum áður en maður kemur upp á söðulinn (skal reyna redda myndum)
    Eru reyndar 3 línur sem hægt er að velja en þessi sem við fórum lookaði skárst en svo þarf það ekkert endilega að vera ég sýð saman einhverja lýsingu.

    Uppklifrið var hefðbundið.

    Friðjón massaði Kistuna fyrir einhverjum árum ég skal pumpa hann með einhverja leiðarlýsingu.

    Kv.
    Magnús

Viewing 14 posts - 1 through 14 (of 14 total)