Tindfjallaskáli- endurgerð að klárast!

Home Forums Umræður Almennt Tindfjallaskáli- endurgerð að klárast!

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47215
    3008774949
    Member

    Vil benda mönnum á nýjustu myndir af skálanum. Eins og sjá má þá er endurgerðin mjög langt kominn og styttist í að hann verði fluttur aftur til síns heima.
    Helgina 26-28 júní næstkomandi verður farin undirbúningsferð í Tindfjöll til þess að smíða nýjar undirstöður fyrir skálann. Öll aðstoð væri vel þegin. Þeir sem vilja aðstoða okkur endilega setið ykkur í samband við einhvern í skálahópnum

    http://isalpskalar.blogspot.com/

    #54264
    kgb
    Participant

    Ekki hika við að hafa samband þótt sért ekki útlærður iðnaðarmaður – í Tindfjallaferðinni þurfum við hendur við að flytja grót og bind járn.

    #54265
    Páll Sveinsson
    Participant

    Manni hlínar bara um hjartað við að sjá skálann svona flottan.
    Glæsilegt hjá ykkur.

    kv.
    Palli

    #54272
    Stefán Örn
    Participant

    Hæ,

    Minni á vinnuhelgina í Tindfjöllum. Endilega að melda sig inn…margar hendur vinna létt verk og allt það!

    Meldingar hingað: stefankri@gmail.com

    kv,
    Steppo

    #54281
    Stefán Örn
    Participant

    Minni á hressandi vinnuferð upp í Tindfjöll um helgina. Markmiðið er að klára undirstöðurnar fyrir skálann og hafa þannig allt til reiðu fyrir sjálfan skálaflutninginn síðar í sumar.

    Góður hópur hefur þegar meldað sig inn og má þar nefna stórmagistera eins og:
    Kristján Guðni
    Hlynur Stefáns
    Hlynur Skagfjörð
    Hálfdán veðurguð
    Fjallaskarpur
    Bragi Freyr
    Bjarki granni
    ..og e-r afkvæmi og makar auk undirritaðs.

    Þess utan hafa ýmsir Tindfjallanaglar eins og
    Valli Knastás
    Halligrímur Magg
    Óli Júll
    ..og fleiri og fleiri hótað að heiðra samkomuna í lengri eða styttri tíma!

    Allir velkomnir og öll hjálp velþegin hvort sem menn vilji kíkja í stutta hvatningarheimsókn eða bera olíu á upphandleggi og bryðja íslenskt grjót!

    Mætið á svæðið eða hafið samband ef spurningar (bílamál o.s.v).

    Hils,
    Steppo
    stefankri@gmail.com
    6641014

    #54282
    3008774949
    Member

    Enn að bætast í hópinn því Skabbi var líka að melda sig með. Skorum á fleiri að mæta. Herramennirnir í Miðdal hafa ákveðið að lána skálann svo það mun ekki væsa um okkur um helgina….

    #54283
    1108755689
    Member

    Frábært að sjá þennan mikla áhuga. Ísalp býður í heljarinnar pylsupartí að pólskum sið á laugardagskvöld.

    Annars vantar mig far uppeftir á laugardag (og heim á sunnudag). Á einhver laust pláss fyrir þéttvaxinn, kassavanann karlpúng á fertugsaldri?
    Bragi Freyr
    s.8967979 bragifreyr(hja)gmail.com

Viewing 7 posts - 1 through 7 (of 7 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.