Tilkynning vegna CO2 við Eyjafjallajökul

Home Forums Umræður Almennt Tilkynning vegna CO2 við Eyjafjallajökul

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46243

    Þetta var að berast frá Almanavarnardeild ríkislögreglustjóra

    Á fundu vísindamannaráðs almannavarna þriðjudaginn 2. febrúar s.l. kom fram að losun CO2 frá Eyjafjallajökli væri væntanlega viðvarandi.

    Fyrir nokkrum árum seig Jón Haukur Steingrímsson félagi í HSSK í svelg í Gígjökli og mældi magn CO2 þar. Í ljós koma að magn CO2 var langt yfir hættumörkum og í kjölfarið var gefin út viðvörun til ísklifrara vegna þessa.

    Á fundi vísindamannaráðsins komu fram upplýsingar um að á vegum björgunarsveita væri stundað ísklifur í Steinsholtsjökli a.m.k. á haustin. Vegna þessa vill almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Hvolsvelli fara þess á leit við þær sveitir, sem hugsanlega ætla að leggja í klifurferðir á þetta svæði, að hafa samband við almannavarnadeildina og fá hjá henni mælitæki til að kanna magn CO2 í sprungum og svelgjum til að hægt verði að ákveða hvort gefa þurfi út sérstaka viðvörun vegna þessa.

Viewing 1 post (of 1 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.