Home › Forums › Umræður › Keypt & selt › Til sölu: Ísaxir og fylgihlutir
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
16. January, 2006 at 16:36 #47237
1306795609MemberÉg hef par af Simond Piranha hefðbundnum venjulegum ísklifuröxum til sölu. Fetlarnir eru af Grivel gerð og eitthvað nýrri en axirnar. Axir sem geta allt. Eru að mínu mati einnar flösku virði.
Ef mögulega væntanlegan kaupanda vantar eitthvað fleira smádót til að komast af stað í klifrinu eða hollræði og frægðarsögur þá er aldrei að vita.
16. January, 2006 at 17:23 #50188
0304724629MemberErtu búinn að fá þér nýjar sleggjur í Frans?
16. January, 2006 at 18:56 #50189
0703784699MemberHann hefur kíkt á Simond bræðurnar sjálfa, þá François eða Ludger og komist að því að það er löngu búið að skipta út mannætufiskunum…..ekki er nú langt að fara frá Grenoble to Chamonix…..
kv.Himmi
16. January, 2006 at 22:36 #50190
KarlParticipantÞetta er farið að minna á fórnirnar sem Kristján Eldjárn færði vegna háskólagöngunnar…
Ég fargaði hryssu á hausti sem leið,
hún var hnarreist og gljáandi skjótt;
ég hafði átt fjölmarga ferlega reið,
á þeim farkosti er dimmdi af nótt;
ég vissi engan betri né blíðari vin
eða brjóst með svo óskeikult þor;
ég elskaði Skjónu og allt hennar kyn,
sem í afdölum fellur úr hor.Svo hélt ég til Víkur í Háskólann minn,
þar sem hámenning þjóðanna sat,
og klöngraðist hingað í kjallarann inn,
fékk mér kaffi og pantaði mat.
Hann kom – en ég þagði og átti ekki orð,
þegar ungfrúin rétti mér krás,
því þar var hún Skjóna mín borin á borð,
Ýmist buff eða steik eða glás.17. January, 2006 at 10:26 #50191
1306795609MemberHimmi skrifaði: “það er löngu búið að skipta út mannætufiskunum…..” Menn geta séð á heimsíðu þeirra bræðra, http://www.simond.com, að Piranha lifa góðu lífi enda er “alpinisme classique” í hávegum í Chamonix. Síðan hefur Amason/mannætuþemað endurfæðst í grimmustu öxinni í dag…
ANACONDA
17. January, 2006 at 12:07 #50192
0702892889Membergaman að segja frá því að mannætufiskarnir eru yfirleitt grænmetisætur
17. January, 2006 at 12:07 #50193
0702892889Member…segir bókin
29. January, 2006 at 17:43 #50194
1306795609MemberAxirnar komnar í nýtt verkefni.
yfir og út!
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.