Þumall

Home Forums Umræður Klettaklifur Þumall

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46497
    Siggi Richter
    Participant

    Ég er að spá í að fara á Þumal í sumar, en hef fundið ákaflega takmarkaðar upplýsingar um klifrið á netinu.
    Ég var þess vegna að velta fyrir mér hvort einhver viti meira um klettinn og gæti svarað eftirfarandi spurningum.

    Hvaða leið er farin
    Hvernig er klifrið gráðað og hversu langt er það
    Hvenær er best að fara

    Kveðja
    Sigurður Ýmir

    #57787
    Sissi
    Moderator

    Sæll.

    Hér er grein á ísalp: http://www.isalp.is/frettir/13-%C3%9Eumall,%20j%C3%BAl%C3%AD%202001.html

    Hér er nákvæmur leiðarvísir (júní 1981) sem er aðgengilegur ef þú ert skráður í ÍSALP (mæli með því, fínir afslættir, ársrit, viðburðir og fleira fínerí): http://www.isalp.is/efni/arsrit.html

    Athugaðu að staðsetning og eðli klifursins gerir það alvarlegt þó að tæknilega gráðan sé kannski ekki há. Menn þurfa að vera vanir að klifra í dóti, henda upp stönsum og sigankerum.

    Have fun.

    Sissi

    #57788
    Bobby Lee
    Participant
    #57789
    Arnar Jónsson
    Participant

    Rakst á þetta. Held þetta sé mynd svo að pilltunum sem fóru fyrst :)

    %25C3%25BEumall%252075%2527.jpg

    #57790
    Kári Hreinsson
    Participant
    Sveinn Friðrik Sveinsson wrote:
    Hér er nákvæmur leiðarvísir (júní 1981) sem er aðgengilegur ef þú ert skráður í ÍSALP (mæli með því, fínir afslættir, ársrit, viðburðir og fleira fínerí): http://www.isalp.is/efni/arsrit.html

    Ég fæ bara villu þegar ég reyni að elta þessa slóð og finn ekkert um ársit undir “Efni” hér vinstra megin. Er slóðin vitlaus eða er ég ekki skráður sem meðlimur á síðunni?

    Góð umræða annars.

    #57791
    Ármann
    Participant

    Í framhaldi af mynd Arnars, þá er hér grein um fyrstu ferð á Þumal:
    http://1918.is/index.php?p=100&i=4

    Á myndinni má svo sjá Snorra Hafsteinsson, Kjartan Eggertsson og Daða Garðarsson, en Kjartan lést er hann féll í sprungu á Gígjökli 1977.

Viewing 6 posts - 1 through 6 (of 6 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.