TELEMARKFESTIVAL – Helgina 7.-9. mars

Home Forums Umræður Skíði og bretti TELEMARKFESTIVAL – Helgina 7.-9. mars

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46595
    0704685149
    Member

    Enn og aftur er blásið til leiks. Telemarkfestivalið verður haldið á Akureyri helgina 7.-9. mars

    Dagskráin er með hefðbundnu sniði verður tilkynnt þegar nær dregur.

    Við viljum minna telemarkara á að fara að huga að búningum og að skrá sig til leiks hér á siðunni. Þið þurfið ekki að vera félagar í ISALP til að skrá ykkur. En það þarf að skrá sig inn á síðuna líkt og á umræðuvefinn til að skrá sig.
    Skráningin gerir okkur lífið léttara í undirbúningi og skipulagningu á festivalinu.

    Allir velkomnir og mótsgjald er ekkert.

    kveðja
    Böbbi og Bassi ásamt fleirum undirbúningsaðilum

    #52509
    0808794749
    Member

    Úje. spennan magnast. hvert festivalið á fætur öðru.

    Áhugasamir geta kíkt á öppdeitaða dagskrá á dagskrársíðunni.
    Staðsetning og ítarlegri upplýsingar varðandi dinner koma er nær dregur.

    mitt mottó er : Frjáls hæll… allavegana einu sinni á ári!

    #52510
    Steinar Sig.
    Member

    Efstur á blaði

    Steinar Sigurðsson – Vinafélag íslenskrar náttúrur (VÍN)

    Frelsið hælana og hugurinn fylgir!

    #52511
    Sissi
    Moderator

    Ég legg til að Siggi Skarp verði dæmdur úr leik þar sem hann er ekki úr Árbænum og Steppo því hann er ekki Telemarkari.

    Heyrst hefur líka að TAT hafi strax hafið skemmdarverk á búnaði annarra keppenda í síðustu viku.

    Nashyrningurinn er mun betur að sigrinum kominn!

    Sissi – ekki úr gettóinu frekar en Siggi

    #52512
    Goli
    Member

    Heyrðu Sissi, hvað ert þú nú að bretta þig?

    Annars trúir maður Töturunum til alls….

Viewing 5 posts - 1 through 5 (of 5 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.