Telemark festivalið

Home Forums Umræður Skíði og bretti Telemark festivalið

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45890
    3008774949
    Member

    Sælt veri fólkið
    Ég vil enn og aftur brýna fyrir fólki að skrá sig hér á vefnum ef það ætlar að eiga séns á að vera með í matnum á laugardagskvöldinu.
    Kokkurinn þarf að fá grófa tölu sem fyrst.

    Eins ef menn eru að skrá marga, þá endilega segja hversu margir það eru

    Skráningar eins og:

    -Afmælislið HSSR kemur, sér og sigrar
    -Telemarkdeild Þórs fjölmennir að vanda

    Þetta segir okkur ekkert um fjöldann!!!

    Berjast…….

    #51250
    0704685149
    Member

    Siggi, Telemarkdeild Þórs er aðeins tveir einstaklingar…og þeir velgja Árbæingum vel undir uggum í öllum greinum …

    …en ég tek undir það með Sigga, best væri ef menn mundu breyta skráningu sinni og taka það fram hvort menn ætli í matinn eða ekki…

    …en Siggi, væri þá ekki þá best að uppljóstra hvað veislumat menn eru að fá fyrir aðeins 1.500 kr …auk hljómsveitar, ýmis tilboð á barnum fram að miðnætti…

    …eða eins og norðmennirnir segja
    Fisk er fisk men kjöt er mat…

    kveðja

    #51251
    3008774949
    Member

    Jú góður punktur

    Á laugardagskvöldið er stefnt að því að hittast á Vélsmiðjunni ( sami staður og í fyrra ) kl 20:00. Það kostar 1500 kr inn og á boðstólnum eru lambakjöt, gratíneraðar kartöflur og salat. Tilboð verða á barnum : 350 skot, 400 stór bjór og 600 á breezer….eða var það 650!

    Mér skilst svo að stórhljómsveitin Alli og Útlagarnir hafi ætlað að spila en Helga Björt er einmitt umboðsmaður þeirra á norðurlandi

    B & B og félagar munu svo gefa öllum vinninga að vanda og farandbikarinn fyrir kvenlegustu tilburðina mun verða afhentur

Viewing 3 posts - 1 through 3 (of 3 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.