T-sveiflur

Home Forums Umræður Skíði og bretti T-sveiflur

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46084
    0310783509
    Member

    Fyrir þá sem eru að rotna heima hjá sér um þessar mundir út af veðurfari þá hef ég þær fréttir að færa að ýbsilon gilið í esjunni er í príma vorslush aðstæðum og var skíðað í gær við mikinn fögnuð nánast alveg niður í bíl.
    Annars erum við á leiðinni norður tveir vitleysingar í leit að meiri snjó og almennu rugli og munum hanga þar fram á sunnudag. Svo þið norðanmenn ættuð að láta okkur vita ef ykkur langar með í nokkrar T-sveiflur eða bara að bjóða okkur hrísgrjónaætunum í kaffi og kvöldspjall þá hringið þið bara.

    Einar Ísfeld

    #48439
    AB
    Participant

    Hvað með festivalið boys! Go west!

    (Skíði hafa löngum verið ofmetin…)

    Kv, AB

    #48440
    0704685149
    Member

    Verið velkomnir hvenær sem er.
    það hefur nú ekki þurft að bjóða mönnum í kaffi…þeir banka bara upp á og þá er heitt á könnunni.
    kv.
    Bassi

Viewing 3 posts - 1 through 3 (of 3 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.