Snjórinn breikkar brosið

Home Forums Umræður Skíði og bretti Snjórinn breikkar brosið

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45165
    0704685149
    Member

    Fylgist með fram að helgi.
    Þetta er tekið af Akureyri.is

    Snjóað hefur í Hlíðarfjalli í allan dag á meðan það hefur verið rigning eða hálfgerð hundslappadrífa í bænum. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, er að eigin sögn farinn að brosa út í bæði. Útlitið fyrir skíðafólk var orðið heldur dapurlegt en nú rætist úr.

    Veðurspáin næstu daga gerir ráð fyrir kólnandi veðri og Guðmundur segist handviss um að það muni snjóa í fjallinu fram yfir helgi. Hann segir tímabært að óska fólki gleðilegra páska!

    Frá Veðurstofu Íslands:

    Á fimmtudag: Norðaustan og austan 10-15 m/s, en hægari um austanvert landið. Slydda eða snjókoma, en él norðan- og norðvestanlands. Frost 0 til 5 stig, en hiti 0 til 6 stig sunnan- og vestanlands.
    Á föstudag og laugardag: Norðaustan og norðan 10-15 m/s, en hægari suðaustan- og austanlands. Snjókoma eða él um norðanvert landið og léttskýjað með köflum sunnantil, en líkur á éljum suðaustanlands. Kólnandi og frost 0 til 5 stig á laugardag.
    Á sunnudag og mánudag: Norðlæg átt og él, en skýjað með köflum og þurrt sunnantil. Kalt í veðri.

    http://www.vedur.is

    kv.
    Bassi

Viewing 1 post (of 1 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.