Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Snjór
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
6. October, 2009 at 17:14 #47407
0801667969MemberRáfaði óvart inn á vef skíðasvæðanna núna áðan. Svo virðist sem talsvert hafi snjóað a.m.k er opin göngubraut. Eitthvað nefna menn hugsanlega opnun bráðlega a.m.k. er byrjað að troða í Fjallinu. Ágætis fréttir fyrir skíðamenn.
Kv. Árni Alf.
7. October, 2009 at 00:31 #54546
KarlParticipantHefur þú rekist á einhverja brettadúdda?
http://www.youtube.com/watch?v=4w7sVSMbjyM&feature=player_embedded
7. October, 2009 at 16:20 #54547
0801667969MemberNúna eru allar skíðaleiðir í Bláfjöllum sem landmótaðar voru í fyrrasumar og snjógirðingar reistar meðfram komnar inn. Þ.m.t. Norðurleiðin lang vinsælasta skíðaæðin.
Það er því í raun engin fyrirstaða að opna nema helst skítaveður a.m.k. næstu daga.
Ég tel að þarna sé komin enn ein sönnunin fyrir byltingarkenndu gildi þess að girða og landmóta. Skíðaleiðir sem ekki hefur verið landmótað og girt við eru hins vegar ekki inni þ.e.a.s. snjólausar að kalla. Þetta sýnir kannski best mátt girðinganna.
Að það sé fræðilega hægt að opna Bláfjöllin svona snemma sýnir hvað landmótunar- og girðingastefnan er að skila skíðafólki.
Kv. Árni Alf.
8. October, 2009 at 11:51 #54549
Freyr IngiParticipantHúrra fyrir snjógirðingum, sem gera gagn!
Húrra fyrir brettaravídjóinu, sem er fyndið!
&
Húrra fyrir kaffi, sem er gott, ekkert húrra fyrir iðnaðarmannakaffi!8. October, 2009 at 12:21 #54550
BjörkParticipantEr samt ekki hægt að laga vefmyndavélina, bara af því að það er svo gaman að sjá?
8. October, 2009 at 13:48 #54551
Freyr IngiParticipantErtu að vonast til að sjá “göngubrettara” í vefmyndavélinni?
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.