Home › Forums › Umræður › Klettaklifur › Skráning á leiðinni Saurgat Satans
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
25. September, 2004 at 16:57 #45682
0309673729ParticipantVel að verki staðið drengir. Gaman að fá fleiri góðar fjölspanna leiðir í flóruna. Fín leiðarlýsing.
Ég lagaði aðeins skráningu á leiðinni sem félagi minn í vefnefnd setti inn. Lagaði bæði texta og mynd, sérílagi myndina. Ómögulegt að ágætlega unnin mynd með áletruðum upplýsingum sem Hrappur sendi inn skuli ekki njóta sín.
Ég tek undir orð Óla Ragga að það er óþarfi að velja svona subbuleg nöfn á góðar leiðir. Það er ekki víst að menn verði jafn stoltir af nafngiftinni þegar tímar líða. Ég geng svo langt að mæla með að þeir félagar endurskíri leiðina.
kveðja
Helgi Borg26. September, 2004 at 11:40 #48960
2005774349MemberVegna skrifa Óla R. og Helga B. fann ég mig tilneyddan til þess að slá inn nokkrar línur.
Ég held að menn séu almennt að misskilja nafnið sem leiðinni var gefið, Saurgat Satans.
Ég hef það eftir áræðanlegum heimildum (ég þekki bæði Hrapp og Rafn ágætlega), að nafnið lýsi leiðinni mjög vel, sem algerum sparigrís Andskotans (sbr. seðla og auragat Satans, saurgat stytt).
Ég óska þeim til hamingju með leiðina og smart nafn, og hvet þá til þess að láta tilmælin hér að ofan sem vind um eyru þjóta.
Bestu kveðjur,
HRG, útsendari Andskotans.
27. September, 2004 at 01:51 #48961
HrappurMember‘eg þakka Helga umbætur á leiðarvísinum og hvað nafnið varðar
þá virðist komin sú hefð að því lélegri sem leiðin er því flottara er nafnið. Ég fylgi þessari hefð auðmjúklegast og í anda þeira öfugmæla sem leiðarnöfn lýsa fékk þessi leið nafn við hæfi.27. September, 2004 at 03:25 #48962
HrappurMemberNon, Je Ne Regrette Rien
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.