Ónýtt efni

Home Forums Umræður Skíði og bretti Ónýtt efni

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46789
    0801667969
    Member

    Hér í Bláfjöllum er búin að vera glæsilegur dagur. Lágarenningur, sól og flott færi. Snjór er með mesta móti og gott utanbrautarfæri. Fallegra verður ekki á Fjöllum. Samt lætur ekki hræða sjá sig hér á skíðum fyrir utan nokkur hundruð skólakrakkar fyrr í dag. Veturinn er loks að byrja. Samt sjá menn ekki fram á annað en að loka búllunni sökum aðsóknarleysis í mesta snjó í mörg ár. Heimur versnandi fer.

    Kv. Árni Alf.

    #51372
    0111823999
    Member

    Það væri rosalegt ef það yrði lokað í Bláfjöllum!
    Sameinumst í björgun Bláfjalla og skellum okkur á skíði/bretti

    #51373
    0801667969
    Member

    Gleðilegt sumar. Ekki ónýtur dagur í aðsigi. Logn, heiðríkja og fimm stiga frost. Fyrir þá sem nú þegar eru ekki farnir annað þá er tilvalið að bregða sér í Fjöllin og flatmaga um hádegisbil í sólbráðinni, éta pizzur og hlutsa á Jónsa í svörtum fötum hér við skálann. Tilvalið fyrir barnafólk. Ef menn nenna geta þeir brugðið sér á skíði. Örugglega engar raðir.

    Kv. Árni Alf.

    #51374
    1705655689
    Member

    Fór með konuna og gríslingana á skíði á sumardaginn fyrsta og ég held að þetta sé einn albesti dagur í Bláfjöllum sem ég hef upplifað ef maður leggur saman færi, veður (logn og sól) og FÁMENNI, þar að auki fínar pizzur. Árni var með lurkinn á leðurskónum, ásamt fullt að járnadrasli (flottur)

    #51375
    1705655689
    Member

    Ps fór svo í Hveragerðis sundlaugina á eftir og þar var ókeypis ofaní þannig þetta var tómur gróði.

Viewing 5 posts - 1 through 5 (of 5 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.