myndir á vefnum

Home Forums Umræður Almennt myndir á vefnum

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46307
    3008774949
    Member

    Sælt veri fólkið.
    Ég er búinn að henda inn slatta af myndum frá Perú ferðinni okkar 2000.
    Slóðin er:
    http://www.stud.ntnu.no/~sigurdsk/myndir/peru_myndir.html

    Siggi Skarp

    #47701
    3008774949
    Member

    Svo hvet ég alla sem luma á flottum myndum að vera ekki að læðupúkast með þær úti í horni heldur að deila með sér.Alltaf gaman að skoða flottar klifur eða fjallamyndir. Það er í raun það eina sem mér finnst vanta meira af á þessum vef.

    SS

    #47702
    0703784699
    Member

    Langaði bara að forvitnast…

    myndin jenniferlopez.jpg

    Unnuðu þið þessa keppni? Minnir endilega að þessi mynd hafi verið tekin varðandi einhverja keppni! eða fer ég með rangt mál?

    #47703
    Ólafur
    Participant

    Málið er það að við vorum með hugmyndir uppi um að senda þessa mynd í blaðið FHM (en á myndinni flagga ég einmitt special edition af því ágæta blaði – 100 sexiest women of the year 2000 – sem hélt okkur við efnið þessar 6 vikur í Perú). Í blaðinu auglýstu þeir að maður gæti unni viskýkassa fyrir “letter of the month” og við töldum okkur vera með öruggan sigurvegara (J-Lo á Huascaran !). Síðan kemur í ljós að þetta gilti aðeins fyrir breska ríkisborgara. Ég ætlaði nú að reyna að fiffa það eitthvað en í næsta blaði á eftir var búið að breyta verðlaununum í kassa af rakspíra og þá missti ég eiginlega áhugann og hugmyndin kulnaði….
    Næst verður það ekkert hálfkák, ég fer með Hustler.
    ÓliRaggi

Viewing 4 posts - 1 through 4 (of 4 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.