Munur á dyneema sling og Nylon

Home Forums Umræður Almennt Munur á dyneema sling og Nylon

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46763

    Hér eru góðar pælingar varðandi það hvernig menn klippa sig inn í stans og munurinn á dineema og nylon sling.

    Gott að pæla í svona hlutum.

    http://blip.tv/a-fuerza-de-plafon/dyneema-and-nylon-drop-tests-4509845

    kv Arnar Þór

    #57366
    Arni Stefan
    Keymaster

    Klárlega eitthvað sem menn (og konur!) ættu að vita af.

    Annars er ég mjög hrifinn af því að nota prússellu til þess að festa mig í stans. Hún hefur þann kost að það er mjög auðvelt að stilla sig af og einnig minnkar hún höggið ef fall á sér stað þar sem prússikinn skrikar undir of miklu álagi.

    Síðan er hestahnúturinn alltaf möguleiki.

    #57367
    Robbi
    Participant

    Já, fannst þetta einstaklega áhugavert video. Hef lesið um þetta áður en þetta negldi það alveg. Hef séð marga sem eru búnir að hnýta sér “daisychain” úr svona slingum og nota til að klippa sér í akkeri. Gott að hafa þetta á bakvið eyrað. Akkerið á að vera sterkasti hlekkurinn í þessu öllu saman…þá geta menn gleymt því að nota svona slinga til að stilla akkerispunkta saman því skv. videoinu þá tapar slingurinn uþb helming styrks við það að setja hnút á hann. Skrúfan á að þola 11kN, setur inn 2 svoleiðis en slingurinn með hnút þolir svo bara 12kN ? Það eru ekki góð vinnubrögð.

    Robbi

    #57380
    Arni Stefan
    Keymaster

    Það er ekki alveg sambærilegt. Slingurinn tapar helming af styrk sínum þarna í fullkomlega statísku kerfi sem verður fyrir höggi (shock load). Þar sem hann tognar ekkert og dregur þar með ekkert úr högginu. Í þeim tilfellum sem slingar eru notaðir í akkeri er línan hluti af kerfinu og þar með hellings dempun. Fyrir þetta tilfelli, þar sem mikil dempun er í kerfinu væri nærri lagi að prófa að slíta svona sling með hnút í tjakk (slow pull test). Ég hef ekki séð neinar slíkar mælingar, spurning hvað kæmi út úr því (væri mögulega hægt að prófa þetta uppí háskóla, þar er stór tjakkur).

    Ég er samt fullkomlega sammála niðurstöðunum úr vídjóinu, en ég er bara ekki viss um að þær eigi við í því tilfelli sem þú stilltir upp Robbi.

    #57385

    Vona að menn séu ekki umvörpum að dóla sér í stansi með slaka á slingnum (deisunni, prúsellunni eða hverju því sem verið er að nota) sem þeir festa sig með í akkerið.

    Það ætti að vera hluti af beisikk hugsun í stansi að vera alltaf með strekkt á slingnum. Sama pæling bara og að vera alltaf með vel jafnað akkeri.

    En það breytir því ekki að niðurstöður þessarar tilraunar er nokkuð afgerandi svo ekki sé meira sagt.

    .

    #57388
    Smári
    Participant

    Svo verða menn að hugsa hvað mjaðmagrindin á manni þolir… ég væri ekki til í að detta í svona sling sama hvort það er hnútur á honum eða ekki. Málið með hnútinn er samt að við snöggt átak þá hitnar hann og veikist við það (þess vegna slitnar slingurinn við hnútinn, held því að test í tjakki mæli ekki það sem verið er að mæla þarna þ.e. að maður í stansi dettur (tryggður í megintryggingu með sling). Aðal málið er að vera ekki með slaka, daisychain er einmitt hugsað til þess að þess þurfi ekki, getur stillt fjarlægðina í ankerið.

    Smári

    #57394
    2808714359
    Member
Viewing 7 posts - 1 through 7 (of 7 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.