Laugavegurinn á Skessuhorn

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Laugavegurinn á Skessuhorn

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45615
    Sissi
    Moderator

    “Eigi skal í bænum beilað”, sagði góður maður.

    HemmiSig, Tryggvi Þórðar og undirritaður hlýddu þeirri reglu í dag þegar við kíktum á NA hrygginn í horni því er við Skessu er kennt. Sáum fjallið aldrei, viðbjóðslegt veður, sunnan stormur og slagviðri. En klifrið í hryggnum sjálfum var ágætt.

    Að sjálfsögðu var brettið tekið með og vorfærið nýtt.

    Leiðirnar í fésinu eru líklega komnar í rúst en hryggurinn er enn ágætur ef það frystir fljótlega. Gríðarleg bráðnun í gangi, rigning á toppnum og áin minnti á Krossá á leiðinni til baka.

    Góður (og blautur) söffer-dagur á fjöllum.

    Sissi

Viewing 1 post (of 1 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.