Klifur á morgun – Sumardaginn fyrsta

Home Forums Umræður Klettaklifur Klifur á morgun – Sumardaginn fyrsta

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47435
    Skabbi
    Participant

    Við Bjöggi og Óli Hrafn ætlum að kíkja í Stardal á morgun. Ef e-r hafa áhuga á að kíkja með er það velkomið.

    Skabbi
    864 5834

    #55392
    Dieinekis
    Participant

    Hi Scabbi!I would be interested.Can you give me some information?

    #55393
    gulli
    Participant

    Var Óli mættur með tupperware safnið?

    #55394
    Skabbi
    Participant

    Vetur og sumar frusu saman í Stardal í gær en það kom ekki að sök enda hlýnaði hratt undir klettunum í sólinni. Klifur var með besta móti og ekki spillti útsýnið yfir gosmökkinn frá Eyjafjallajökli.

    Óli rogaðist með duffelbag úttroðinn af matvælum upp brekkuna, hélt Tupperware kynningu fyrir okkur í matarpásunni á meðan hann smjattaði á baguette með 4 tegundum af ostum, Chorizo Extra, ansjósufylltum ólífur, súrsuðum smálaukum og rækjusalati.

    Góður dagur á fjöllum, fóru aðrir út að leika?

    Allez!

    Skabbi

    #55395
    olikrummi
    Member

    Ekki vanur að hengja mig í smáatriðunum en þetta var kartöflusalat… takk fyrir góðan dag… gleðilegt sumar á alla.

    Kv.
    Óli Hrafn

    #55396
    Gummi St
    Participant

    Flottir,

    Við skruppum þrír til Grundarfjarðar og skelltum okkur á Kirkjufell í glampandi sól og flottheitum, frekar kalt á toppnum, snjór efst og í austurhlutanum. Frábær sumardagur

    kv. Gummi St.

    #55391
    2308862109
    Participant

    Við skruppum 2 ég og Leifur í Skarðsheiðina á öðrum í sumri. Fórum upp NV-vegg Skessuhorns í skemmtilegum aðstæðum og frábæru veðri.

    Dóri

Viewing 7 posts - 1 through 7 (of 7 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.