- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
15. February, 2005 at 12:09 #46173
0304724629MemberHvernig er það með stjórnina, ætlar hún ekki að taka neina ákvörðun með þetta festival?
Mér finnst þetta ekki nógu vel undirbúið, enginn dagskrá og engar myndir frá þessu svæði og ekki neitt. Þetta er nú svolítill krókur að mæta og því ekki verra að setja góða beitu á öngulinn svo menn og konur fjölmenni.
Hvenær byrjar þetta og hvenær er festivalið búið?
rok
15. February, 2005 at 13:29 #49445
0704685149MemberÆtli það þurfi bara ekki að bjóða þetta út eins og er orðið vinsælt á suðvesturhorninu…þannig geta menn verið að fyrra sig allri ábyrgð…og bent bara á næsta mann.
Eða menn eru að bíða svo lengi að það sé ekkert annað í stöðunni en að fresta þessu.
Bassi
15. February, 2005 at 15:54 #49446
Páll SveinssonParticipantÉg hef nú ekki séð flottari veðurspá til klifurs í langan tíma eins og er spáð um næstu helgi. Og það meira og minna um allt land.
Ég held það sé algjört aukaatriði hvert verður farið það má alltaf finna einhvern ís til að berja.
Palli
15. February, 2005 at 16:41 #49447
AnonymousInactiveÉg get nú ekki verið annað en sammála. Veðurspáin hefur tekið algerum stakkaskiptum síðustu 24 tímana.
Olli15. February, 2005 at 17:04 #49448
0304724629MemberBúinn að missa af öllu flugi bæði á fimmtudag og föstudag.
Palli minn, þ.að verður þá að bíða betri tíma að ég kenni þér handtökin og leyfi þér að hanga í spottanum hjá mér.
Har det!
rok
16. February, 2005 at 11:06 #49449
1704704009MemberJá takið ykkur tíma til að leika ykkur með rétt handtök og spotta. Munið bara að nota áttuhnút. Það þarf tvo til. Það segir DV a.mk. bls. 15 í dag.
17. February, 2005 at 11:58 #49450
1210853809MemberHvenær ætlar mannskapurinn svo að leggja af stað í Haukadalinn, í kvöld eða á morgun ? Bara að spá svona í sambandi við gistingu upp á að koma sér saman í bústaði …!
Jósef
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.