- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
29. April, 2007 at 17:43 #46534
AnonymousInactiveVið Haukur fórum á Hrútfjallstinda í gær og fórum á alla toppana ásamt því að skreppa inn á Jökulbak. Alveg þrusu skemmtileg ferð og veðrið var eins gott og hægt var að hugsa sér.
fjallakveðja. Olli29. April, 2007 at 22:54 #51422
1704704009MemberFlottir. Fóruð þið upp með Hafrafellinu, tókuð toppalykkjuna og síðan sömu leið til baka?
Myndir?
30. April, 2007 at 10:32 #51423
AnonymousInactiveJá við gerðum það. Ég skal reyna að koma með myndir. Ég tók um 150 myndir á leiðinni enda frábært veður. Nú fer toppunum sem eftir eru í Skaftafelli að fækka verulega. Klára dæmið um næstu helgi ef veður leyfir.
Olli30. April, 2007 at 13:43 #51424
2506663659ParticipantGlæsilegt Olli.
Hvaða tinda áttu eftir í Skaftafelli og nágreni?kv,
Guðjón30. April, 2007 at 14:15 #51425
SissiModeratorOlli – þú ert magnaður (og pínu klikk

Sissi
30. April, 2007 at 14:50 #51426
AnonymousInactiveÉg á Efri Dyrhamar og Svínahrygg. Síðan á ég eftir að fara upp hjá Breiðarmerkurfjalli og taka 5 tinda þar, þeir eru:Antafjallstindur, Káratindur, Þuríðartindur, Mikill og Heljargnípa. Þá er bara að færa út kvíarnar og fara á aðra staði. Jú Sissi að sjálfsögðu er ég alveg kolklikk en hvað er gamann í dag að vera bara eðlilegur????
3. May, 2007 at 20:24 #51427
1508563459MemberJá strákar þetta er rétti andinn. Það er ekki hægt að vera bara normal, þeir sem eru bara normal gera ekki þessa flottu hluti. Gangi ykkur vel, einn gamall og …
Kveðja Hermann Valsson
9. May, 2007 at 14:41 #51428
SissiModeratorÞú athugar að það má ekki fara hrygginn á Heljargnípu fyrr en 2015
(3 uppferðir: 1985/1995/2005)
SF
9. May, 2007 at 16:12 #51429
AnonymousInactiveÉg skal bíða til 15 júní 2007 í seinasta falli.
Olli9. May, 2007 at 18:55 #51430
SissiModeratorAðrar leiðir eru leyfilegar sko, og Jón Geirs bendir á að suðurbrekkan er “ákjósanleg skíðabrekka” í upphaflegu lýsingunni
9. May, 2007 at 23:39 #51431
AnonymousInactiveAnnars er ekkert víst að ég fari hrygginn. Það er ekki markmiðið í þessu máli að vera með einhverja hetjustæla á einstöku fjalli heldur einbeita sér að því að klára allan pakkann hratt og vel þess í stað.
Olli10. May, 2007 at 09:02 #51432
SissiModeratorJamm – en þetta er gríðarlega fallegt svæði. Teiknaði okkar leið á kort og gerði smá leiðarlýsingu ef það hjálpar þér: http://gallery.askur.org/sissi_heljargnipa05/kort
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.