Gott skíðafæri

Home Forums Umræður Skíði og bretti Gott skíðafæri

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46071
    0801667969
    Member

    Vil benda mönnum á að það lítur út fyrir glæsilegan dag (og reyndar næstu tvo) hér í Bláfjöllum. Nægur snjór og allar leiðir opnar. Hér er hæglætisveður og er að létta til. Endilega takið með ykkur sólkrem og sólgleraugu.

    Kv. Árni Alf.

    #49649
    Sissi
    Moderator

    Þetta var ágætt í dag, slatti af snjó enn í fjöllunum. Sá samt ansi fáa, til marks um það náði ég 8 ferðum á einum klukkutíma. Stuð.

    #49650
    3110665799
    Member

    VAr við rennsli og leið niður brekkurnar gleymdi mér við lög Geirmundar og átti góðan dag. Nægur snær og skagfirsk sveifla eins og hún gerist best.

    Valli

    #49651
    0902703629
    Member

    …hér er þrusufæri, ágætis skíðafæri í troðnum brautum og enn betra utan-brautar, við brettagúbbarnir skemmtum okkur vel í Suðurdalnum.

    Um síðustu helgi féllu smáflóð hér og þar en þessa dagana er allt með ró og spekt.

    Sjáumst í brekkunum,
    Kristín

Viewing 4 posts - 1 through 4 (of 4 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.