Home › Forums › Umræður › Keypt & selt › Gormur á Chilli
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
23. March, 2006 at 09:20 #46843
2405804549MemberEkki býr einhver svo vel að eiga gorm/hælstikki á Rottafella Chilli ?
Kv. Sigurgeir
sgunnars@gmail.com23. March, 2006 at 11:26 #50409
1402734069MemberÉg veit að Bassi fer ekki í fjallið án þess að vera með fullan bakpoka af varahlutum í Chili-ana sína ….
….. spurning að kaupa bara nýja bindinga

Kv.
Böbbi23. March, 2006 at 11:35 #50410
0704685149MemberÉg lét minn síðasta varahlut sem ég gat séð af núna á sunnudaginn.
En ég veit að menn hafa bara skrifað harðort bréf til Rottafella og kvartað sáran yfir gormunum að þeirr fyllist af snjó og verði ónýtir eða að hankarnir brotni.
Viti menn…stuttu seinna kemur í pósti nýtt sett af gormum með krókum og alles.Ekki satt Jens?
kveðja
Bassi…alltaf viðbúinn23. March, 2006 at 12:29 #50411
2411784989MemberÉg var aldrei í vandræðum með gorma, en vírarnir slitnuðu. Mæli með að þeir sem eru enn með víra græji króka í staðinn (t.d. með kurteisum tölvupósti til Rottefella, eða jafnvel bara hjá umboðsaðila).
Annars get ég sent þér gorma Sigurgeir, mínir eru einusinni ekki orðnir neitt svo teygðir. Sendi þér tölvupóst.
kv.
jens23. March, 2006 at 12:32 #50412
2806763069MemberGvöð minn góður, fáið ykkur bara fjallaskíði, ekkert vesen og ferðahraðinn eykst til muna, bæði upp og niður!
Ívar
23. March, 2006 at 16:28 #50413
3110665799MemberÉg á gorma, krækju-vír og hælstykki, en tek undir með Jens og Bassa það er ráð að senda Rottefella erindi ,ef þú telur að þetta sé galli.
Valli
24. March, 2006 at 12:05 #50414
1402734069MemberKaupa sér bara gormalausa bindinga ….. norska Linken!!
24. March, 2006 at 13:56 #50415
0704685149Member…eða hafa aukasett á bakinu…eins og ég í gær.
Eini sá sem þurfti að líða fyrir það var ,,skíða” – Partnerinn minn sem þurfti að bíða eftir mér…hehe…EN það er snjóa og frábært færi í Hlíðarfjalli.
kv.
Bassi -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.