Flottar skíðamyndir frá Fróni

Home Forums Umræður Skíði og bretti Flottar skíðamyndir frá Fróni

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47298
    Jokull
    Member

    Þar sem að það er nú farið að grána í fjöll að þá datt mér í hug að Ísalparar hefðu gaman af smá upphitun fyrir veturinn………
    Smellið á hlekkinn til að sjá brot af því besta frá 2010 vertíð Arctic Heli Skiing á Tröllaskaganum. Þarna er að finna myndir frá þremur atvinnu snillingum t.d fjallahirðljósmyndara okkar honum Guðmundi Tómassyni.
    Njótið vel og farið svo að brýna kantana því veturinn er á næsta leiti….

    Best of Arctic Heli Skiing 2010

    #55562
    Öddi
    Participant

    Sweeeeet!!! Það er farið að sjást í hvítt á toppi fjallanna hérna í Skagafirði. Er farinn að dansa snjódansinn fyrir megafreshhh vetri ;)
    Kv.Öddi Hólabóndi
    Ps : er að fara kaupa mér splitboard. Hefur einhver reynslu af þeim hér á Fróni?

    #55565
    0703784699
    Member

    Það hefur verið að falla ansi blautur snjór niður hér sunnan heiða í allan dag…vonum bara að þetta verðir kaldur vetur með miklum snjó.

    En varðandi split að þá hefur verið ritað ansi mikið um það hér á síðunni….ef maður reynir að súmmera það upp þá virka þessi bretti miklu betur en björtustu menn þorðu að vona, bara að skella sér á einn grip. Ég á ennþá til eitt Voile split kit (vantar bara split bretti frá Burton eða Voile og snjóbrettabindingar til að græjan virki ef einhver vill bjóða í það, það er ónotað).

    Eini gallinn við þetta eru mjúku brettaskórnir, nema þú ætlir þér að vera á stífum skóm. Mjúkir skór eru bestir á niðurleiðinni en geta verið til trafala þegar þú þarft að sparka spor í harðan snjó, en hver rennir sér svosem í hörðum snjó og ef svo er þá hefur maður bara einn skíðavitleysinginn með sér til að fara á undan…

    Gimp

    #55568
    Öddi
    Participant

    Takk fyrir thetta Himmi. Er einmitt buinn ad vera spa i hvernig bindinga/sko system eg vill hafa. Bylting ad thurfa ekki ad bera brettid upp a bakinu til thess ad komast i goda stuffid ;)
    Kv.Oddi

Viewing 4 posts - 1 through 4 (of 4 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.