Flekaflóð á öskulaginu í Suðursveit

Home Forums Umræður Almennt Flekaflóð á öskulaginu í Suðursveit

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45355
    2006753399
    Member

    Halló Ísalparar,

    Var á ferð í Suðursveit síðustu tvær helgar á Þverártindsegg og Birnudalstind. Það eru mjög sérstök snjóalög þar sem fennt hefur yfir öskulagið frá því í maí. Öskulagið er oft vel glerjað og allt að 2cm þykkt íslag ofan á því eftir sólbráð. Á þverártindsegg voru t.d. 10-20cm jafnfallnir ofan á öskulaginu og allt að 1m uppá brún.

    Hérna er sýnishorn af amk. 150m breiðu flóði sem fór af stað í Birnudal á laugardaginn líklega. Þetta er amk. Sz2 og vel blautt. Rann af stað á 20110521 öskulaginu. Það má því alveg passa sig á öskusvæðum í suðurhlíðum, það er ekki á hverjum degi sem maður sér flekaflóð í júní!

    kv
    Róbert Þór

    IMG_6797b.jpg

Viewing 1 post (of 1 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.