Bullsjóðandi stemming

Home Forums Umræður Skíði og bretti Bullsjóðandi stemming

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46355
    Ólafur
    Participant

    Það er bullsjóðandi stemming fyrir helginni:

    Þjalaskrap heyrist úr öllum bílskúrum…
    Áburðarstraulykt liggur yfir Árbænum…
    Sleipiefni fyrir sundknattleik á þrotum í apótekum bæjarins…
    Búið að brenna “Best of Aprés-ski” á disk…

    #49542
    3008774949
    Member

    Því má við bæta að DJ Greenhorn hafði þó nokkuð að segja um lagaval fyrir Telemark Festival Apres Ski 2005
    Jafnvel að lög eins og zwanzig centimeter heyrist um helgina …..

    #49543
    2707713519
    Member

    Ná má team-Árbær fara að vara sig. Því karateklúbburinn Nashyrningurinn hefur skráð sig til leiks. Ef þeir verða með derring í fjallinu þá verður lumbrað á þeim í sundknattleik. Við þurfum ekkert leynivopn því að Skúli er í okkar liði.

    Kv.
    Ole

    #49544
    Sissi
    Moderator

    Guð minn almáttugur – ég vona að þið ætlið ekki að taka hinn berháttaða og ofbeldisfulla úberþjálfara ykkar með, bjór í annarri og bjór í hinni meðan hann gefur mönnum Glasgow kossa í röðum. Þá má team Árbær sko fela sig til fjalla…

    Annars veðja ég á Nashyrninginn í hnúaarmbeygjukeppninni!

    Sissi

    #49545
    Goli
    Member

    Hvar getur maður nálgast þetta lag, Zwanzig Centimeter, með betri lögum sem heyrst hafa í langa tíð…?

Viewing 5 posts - 1 through 5 (of 5 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.