Boulder-Ís í Klifurhúsinu

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Boulder-Ís í Klifurhúsinu

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46450
    Siggi Tommi
    Participant

    Jæja, það var fámennt en góðmennt á fyrsta boulder-ís (Bís – þurrtólun) kvöldi vetrarins.

    Mér skilst á ráðamönnum í KH að þar eigi hér eftir að vera opið til kl. 23 á miðvikudögum og munu áhugasamir fá að sveifla járnum þar eftir kl. 21 ca.
    Rétt er að benda á að Bís-ið virkar bara eins og hefðbundin búldersession í KH, þ.e. maður þarf að vera með árskort eða kaupa sér skipti til að vera memm að sjálfsögðu.

    Ennívei, þá kíktum við aðeins í dótakassann og settum upp slurk af ísaxa-gripum þar sem vantaði og er stór hluti af hellinum orðinn vel brúklegur fyrir þurrtólun. Meira verður sett upp næsta miðvikudag og vonandi verður meiri mæting þá.

    Sjáumst með byssurnar í botni á miggudaginn!

    #56916
    Jon Smari
    Participant

    Frábært framtak!! Var einmitt að þreifa fyrir mér í ísklifri síðasta vetur og í sumar. Klárlega kominn tími til þess að breyta til í KH og prófa þurrtólun.

    Kveðja,
    Jón Smári

Viewing 2 posts - 1 through 2 (of 2 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.