Arnarfjörður – Ísaðstæður

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Arnarfjörður – Ísaðstæður

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45332
    0304724629
    Member

    Nú eru njósnarar okkar á Suðurfjörðum búnir að senda ansi kræsilegar myndir sem ættu að kveikja í þeim sem eru í festivalhug. Ég ætlaði að henda þeim inn á mínar síður en ég er ekki með aðgang. Er samt búinn að borga. Er hægt að kippa því í liðinn?

    rok

    #53700
    0304724629
    Member

    Æi ég nennti ekki að bíða og setti bara upp flickr síðu.
    http://www.flickr.com/photos/35033638@N04/

    Njótið

    #53701
    Smári
    Participant

    Vá hvað ég hlakka til.

    28 skráðir hér á síðunni og einhverjir útlendingar hafa boðað komu sýna. nú fer að fyllast í gistinguna. Það er væntanlega hægt að redda sér á einhvern hátt en klárlega skemmtilegast að vera með hópnum….

    Skrá sig sem fyrst, fyrstur kemur fyrstur fær plássið

    #53702
    0304724629
    Member

    Gaman að segja frá því að samgöngur á Vestfjörðum eru ekki upp á marga fiska að vetri til. Ef við Ísfirðingar heiðrum samkomuna, þá verður ferðalagið til nágranna okkar á Bíldudal eitthvað á þessa leið. Bíll skutlar okkur að Hrafnseyrarheiði sunnan Þingeyrar. Þar verða skíðin spennt undir, klifurgírnum og bjórnum skellt á bakið og gengið yfir heiði. Úr skarðinu verða skinnin tekin undan og salíbunað niður í Arnarfjörð. Þar bíður okkar bátur sem kemur hópnum yfir fjörðinn.

    Þess má geta að á sumrin eru vegalengdin um 145km en ef við keyrum að vetri til, eru þetta um 700km eða eins og langleiðina til Egilsstaða. Svona er Ísland í dag.

    #53703
    0311783479
    Member

    Uti um vida verold tala menn hvern um annan thveran um thorf a fiscal stimulus pokkum (ekki osvipadir jolapokkum ef ut i thad er farid).

    Nokkud ljost ad ef einhvern timan er vilji fyrir slikum pakka utdeilingum a Islandi tha er af naegu ad taka fyrir westan a fjordum!

    Mer er enn minnistaed westurferd vor, Andra, Stebba og Sissa a jeppa hins sidastnefnda a isklifurfestivalid 2004 i heimabyggd Runars og Eiriks. Thad var ekki fyrir hvern sem er ad aka, thar sem positivur veghalli ut ad sjo plus snjoflod a stoku stad voru oft a tidum rettir dagsins.

    Episkt festival thad var nu!

    Tha er rausi dagsins lokid ;o)

    H

    #53704
    Sissi
    Moderator

    Good times. Mæli með að menn taki stærri skóflur en Ortovox til að moka bílana í gegnum snjóflóðin.

    http://gallery.askur.org/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=156139&g2_serialNumber=2

    …og það var Greyboy Allstars ef ég man rétt, eigi ACDC ;)

Viewing 6 posts - 1 through 6 (of 6 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.