Árbókin

Home Forums Umræður Almennt Árbókin

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45907
    2411784719
    Member

    Var að fá árbókina í hendurnar eftir langt ferðalag hennar með póstinum frá stórborginni og hingað norður á hjara veraldar.
    Verð að óska öllum þeim sem komu að gerð bókarinnar til lukku með hana, hún er GRÍÐARLEGA vel heppnuð þið eigið öll hrós skilið.

    kv úr Ólafsfirði, Rúnar

    #53097
    2806763069
    Member

    Sammála síðast ræðumanni. Stafrænt klapp á bakið á ritnefnd frá mér. Allir þeir sem lögðu til orð og myndir fá einnig klapp fyrir vel unnin störf!

    Myndasíðu opnan aftast er virkilega skemmtileg hugmynd og þær greinar sem ég er búinn að lesa skemmtilegar og vel skrifaðar. Frábært orkuskot svona þegar veturinn virðist vera við það að skella á – fallegt úti í dag!

    Takk fyrir mig!

    kv.
    Ivar

    #53098
    1908803629
    Participant

    Tek undir þetta – frábært ársrit og verður greinilega betra og betra. Fyrstu þrjár greinarnar eru gargandi snilld, en ég hló upphátt þegar ég las af sólóklifri Karls I og a fetlalausa strútseggjaeista-ísklifrið hans Skabba.

    Keep up the good work!

    Kv. Ágúst Kr.

    #53099
    Anonymous
    Inactive

    Get tekið undir þetta. Frábært rit og þeim til sóma sem það unnu. Bæði góðar greinar og gott myndmál.

    Kv. Sigurður.

    #53100
    Skabbi
    Participant

    Við í ritnefnd þökkum kærlega fyrir hólið. Það er talsverð vinna sem liggur á bak við ársritið þannig að það er alltaf gaman að sjá að það falli í kramið.

    Eins og ég hef margoft sagt áður þá eruð það þið, félagar í klúbbnum sem gerið ritið skemmtilegt. Haldið áfram að senda okkur myndir og greinar, þannig verður ársritið ennþá betra að ári.

    Takk

    Allez!

    Skabbi

    #53101
    0311783479
    Member

    Hallo

    Fanta fint arsrit!

    Gaman ad thvi hvad myndirnar er i godar, fyrirtaks landslags og kumpanlegir kappar a ferd.

    Thetta verdur manni aeggjan um ad gripa pennan og hripa nu eitthvad nidur a blad fyrir naesta arsrit – tho eg se nu annaladur letingi…

    Takk
    Halli

    #53102
    Stefán Örn
    Participant

    Fantafínt ársrit!

    Takk fyrir mig,
    Steppo

Viewing 7 posts - 1 through 7 (of 7 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.