Alpaævintýri – video og myndir

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Alpaævintýri – video og myndir

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47285
    1908803629
    Participant

    Nú er komið ágætis magn af efni frá okkur Magga Smára, Jóni Heiðari og Gumma stóra eftir alpaævintýri sumarsins.

    Eflaust hafa flestir þegar séð myndirnar hans Gumma á síðu hans og félaga á http://www.climbing.is. Þeir sem eiga það eftir eiga gott í vændum enda rugl flottar myndir sem Gummi hinn mikli tók.

    Til viðbótar við það er ég búinn að klippa saman tvö videó frá fyrstu tveimur dögunum og fleiri eru á leiðinni. Þessi video, ásamt frásögn frá dögunum tveimur eru á eftirfarandi síðu http://goingup2010.wordpress.com en sú síða segir jafnframt frá öllum undirbúningi ásamt öðru misáhugaverðu fyrir fjallagarpa og gellur.

    En videóin eru hér að neðan, vilji menn bara kíkja á þau.

    http://www.youtube.com/watch?v=m6bgMOMWHuU

    http://www.youtube.com/watch?v=_lANnnIV9uM

    Vonandi hafa menn og konur gaman af frásögnum sem þessum enda var alpaferð okkar félaga allskostar frábær og við kjör aðstæður.

    #55560
    1506774169
    Member

    Frábær vídjó. Maður myndi vilja sjá meira svona úr leiðöngrum ísalpfélaga :)

    #55585
    1908803629
    Participant

    Fyrst ég er byrjaður þá sakar ekki að halda áfram að henda inn nýjustu videoum á síðuna.

    Þetta vid er frá degi þrjú en það var annar af tveimur hápunktum ferðarinnar.

    Lyskamm hryggurinn og tindarnir tveir eru skrambi góð dagsskemmtun.

    #55593
    1908803629
    Participant

    Ég held áfram að dæla þessu inn.

    Dagur 4 af 5 – endað í og gist í hæsta skála/gististað í Evrópu, Margherita hut, á tindi Signalkuppe (4.552 metrar).

    #55595
    0111823999
    Member

    Like ;) .. Flott video og geðveikt útsýni!

    #55596
    1908803629
    Participant

    Og hér kemur síðasta videoið úr alpaferðinni, dagur fimm, en þessir fimm dagar áttu að vera upphitun fyrir eitthvað annað og meira en veður stöðvaði slíkar áætlanir.

    http://www.youtube.com/watch?v=hPp9dgJQc7E

    Til viðbótar við þetta mun video um klettaklifur á Ítalíu rata á víðnetið, en við flúðum í það fyrst það viðraði ekki nógu vel fyrir Matterhorn.

    #55598
    Björk
    Participant

    Flott og skemmtileg vídjó.

    Þetta hefur verið góð ferð hjá ykkur þrátt fyrir að aðaltakmarkið hafi gefið ykkur fingurinn.

    Manni langar bara á fjöll.

    #55600
    1908803629
    Participant

    Takk fyrir það Björk. Fyrst að takmarkinu var ekki náð var haldið til Ítalíu og þar ýmislegt prýðisskemmtilegt brallað eins og klettaklifur, klettadýfur og deep water soloing.

    Þannig að hér kemur allra síðasta video úr ferðalagi okkar félaga, frá Lago di Como – Italia.

    Vonandi höfðu menn gagn og gaman af.

Viewing 8 posts - 1 through 8 (of 8 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.