Allir að mæta í jólaklifur!

Home Forums Umræður Almennt Allir að mæta í jólaklifur!

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #44705
    1811843029
    Member

    Jæja kæru félagar!

    Eins og vonandi allir vita þá er jólaklifur á morgun. Það stefnir í frábæra mætingu hressra Ísalp félaga og veður spáin er bara góð.

    Hittumst öll á Select við vesturlandsveg klukkan 9, söfnum hópnum saman og tökum spekingaspjall.

    Stefnan er tekin á Múlafjall sem hentar vel fyrir sósíal klifur.

    Um kvöldið koma svo allir í Ísalp salinn á efri hæðinni í Klifurhúsinu. Þar býður klúbburinn uppá jólaglögg meðan birgðir endast og fjör frameftir kvöldi.

    Hverjir ætla að mæta?

    Ég ætla allavega ekki að klikka á þessu!

    Kveðja,

    Atli Páls.

    #58029

    Ég hlakka svo til að ég á ekki eftir að geta sofið í nótt!

    #58030
    2809774899
    Member

    Mæti kátur og hress í fanta jólastuði. ;D

    #58031
    Sissi
    Moderator

    Svona Fanta jólastuði?

    [attachment=514]fanta_jolastud.JPG[/attachment]

Viewing 4 posts - 1 through 4 (of 4 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.