Afslættir Ísalp

Home Forums Umræður Almennt Afslættir Ísalp

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45671
    0304724629
    Member

    Fór í Útilíf í gær til að versla eina jólagjöf. Veifaði síðan stoltur afsláttarkortinu frá klúbbnum og stelpan sagði að það væri ekki gilt. Þetta kort væri ekki í kerfinu. Ég maldaði í móinn og fékk að lokum 10% eftir að hún talaði við verslunarstjórann. Stjórn Ísalp þarf greinilega að athuga þetta og hvort að svipað sé uppi á teningnum í öðrum útivistarverslunum.

    rok

    #50110
    Páll Sveinsson
    Participant

    Everest gaf mér 10%.
    Sagði að 15% væri rangt og mæltist til að það væri talað við þá áður en þetta væri auglýst.

    kv.
    Palli

    #50111
    0503664729
    Participant

    Veifaði afsláttarkortinu hjá Ljósmyndavörum í Skipholti og þar voru menn greinilega ekkert sáttir með Ísalp kortið en fékk þó uppgefinn afslátt.

    JVS

    #50112
    Steinar Sig.
    Member

    Já það er rétt, Everest gefur 10% staðgreiðsluafslátt til Ísalpfélaga. Það þarf eitthvað að athuga þetta á kortinu. Það er ekkert annað ferðafélag að fá meiri afslátt en þetta.

    #50113
    1709703309
    Member

    Þakka kærlega fyrir þessa ábendingu. Stjórnin þarf greinilega að hnikja á þessu máli.

    Takk fyrir,
    Stefán Páll Magnússon
    gjaldkeri ÍSALP

    #50114
    1704704009
    Member

    Byrjum á Ljósmyndavörum: Ég talaði persónulega við þá og fékk þennan afslátt með glöðu geði þeirra. Skil hreinlega ekki þennan viðsnúning.

    Everest: Sama þar.

    Útilíf: Talaði við Gerði framkvæmdastjóra og ekki var nú tregðunni fyrir að fara hjá henni, frekar en öðrum þegar falast var eftir afslætti.

    Þessar frásagnir koma því vægast sagt á óvart. Auk þess sem ég hef notað mitt kort án vandræða. Heilræði: Sýnið kortin og fáið ykkar afslátt eins og um var samið og hananú.

    #50115
    0703784699
    Member

    Hef sagt það áður og segi það enn….verslið á netinu og takið ekki þátt í þessari vitleysu, svo ekki sé minnst á úrvalið sem okkur er boðið uppá!!

    Ég borga ársgjaldið til að fá ársritið inn um lúguna mína og ég bíð enn…..

    kv.Gimp

    #50116
    0704685149
    Member

    Ég borga ársgjaldið til að stuðla að ISALP verði áfram til sem félagskapur og reyni að leggja mitt af mörkum með að taka að mér verkefni sem gætu fallið undir hatt ÍSALP en að fá ekki eitthvað frítt eða með afslætti.

    kv.
    Bassi

Viewing 8 posts - 1 through 8 (of 8 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.