Aðstæður f. Norðan?

Home Forums Umræður Skíði og bretti Aðstæður f. Norðan?

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46700
    0703784699
    Member

    Kannski að norðan menn gefi smá comment á aðstæður f. norðan svona til að vita hvort það sé þess virði að skella sér á AK um helgina….

    GIMP

    #48657
    0902703629
    Member

    Hér hefur verið sumarveður s.l. sólarhring, 11 stiga hiti og skýjað með köflum einsog Trausti Jónsson veðurfræðingur orðar það. Í Hlíðarfjalli er vorfæri, snjór í brautum og varhugavert að skíða utan þeirra. Hinsvegar má gera sér í hugarlund að nægur snjór sé á Vindheimajökli og næsta nágrenni (svona ef menn nenna að brölta utanbrautar).

    Hinsvegar er mun meiri snjór á annesjum, s.l. sunnudag var t.d. nægur snjór á skíðasvæðinu á Siglufirði og í nærsveitum. Þá hefur verið opið á Dalvík s.l. daga og þar hefur hitinn ekki verið jafn mikill og á Ak. Auk þess sem Hvalvatnfjörður og nágrenni virðist safna í sig umtalsverðum snjó, þar er mun meiri snjór en á sama tíma í fyrra.

    Með kveðju,
    Kristín

Viewing 2 posts - 1 through 2 (of 2 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.