55°

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45470
    Robbi
    Participant

    Fórum í eftirmiðdagsklevur, ég og ági. Það er ekkert meiri snilld en að skreppa í Esjuna eftir skóla/vinnu og príla aðeins, það tekur ekki meira en svona tvo tíma. Hvernig er það með alla þessa hobbíklifrara…fara þeir bara um helgar, eða nenna þeir ekki að drita eftirmiðdagsklifrinu inn á spjallið ?
    Robertino

    #49326
    Stefán Örn
    Participant

    …þeir fara á skíði!

    #49327
    1704704009
    Member

    Tókstu myndir Robbi?

    #49328
    1210853809
    Member

    Það er snilld að skella sér í klifur eftir skóla og þá eru Búahamrarnir mjög henntugir, stutt frá, lítið labb og ljósin frá bænum lýsa allt upp …

    #49329
    2806763069
    Member

    Is piss, við atvinnuklifrarar gefum bara skít í þetta og förum bara að klifra allan daginn.

    Reyndar man ég til þess að einhverjir hobbý klifrarar reyndu að fara Þilið eftir vinnu, tókst reyndar ekki vegna þess að Petzl klikkaði en samt helv. góð tilraun.

    En þetta var í gamla daga þegar menn voru harðir og reyndu að keppast um að vera harðari en allir hinir. Þá var nú gaman að lifa!

    Undanfarar voru alvöru kallar sem maður leit upp til, Dagur fékk póstinn sinn sendan í Glymsgil, menn mættu á alpaklúbbsgleði drukku vel og hlupu svo naktir um bæinn eða merktu einhvern með hnefaförum. Sumir voru svo harðir að það þurfti girðingarstaur úr járni til að berja á þeim og samt mættu þeir í vinnuna á mánudegi og klifuðu Grafarfossinn með höfuðljós á þriðjudagskvöldum.

    Kunni reyndar ekki alltaf að meta þetta þá en ekki laust við að ég sakni þess stundum. Ekki skrítið að ég sé svona skemmdur!

    Hardcore með nostalgíu tár á vanga.

    #49330
    1210853809
    Member

    Ívar, ég held að vandamálið sé að í dag er mjúki maðurinn í tísku svo það hefur ef til vill áhrif á hardcore-inn í mönnum og hugsanlega gert einhverja mjúka sem áður voru harðir.

    Jósef

    #49331
    Robbi
    Participant

    Ég er sko ekkert softcore…og ef eitthvað er þá er það ég sem ber á járngirðingarstaurunum. Hinsvegar veit ég ekkkert um þetta með að hlaupa nakinn um bæinn…hljómar svolítið pervertískt.
    Örlygur. ég gerði heiðarlega tilraun til að taka myndir….en vélin gleymdist í bílnum. vonandi næst.
    Kveðja:
    Wannabe Hardcore…aka softcore

    #49332
    Anonymous
    Inactive

    Ívar það verður að gefa þessum ungu, efnilegu og áhugasömu séns á að sanna sig annars verður engin endurnýjun. Svo er vert að muna að þegar maður lítur til baka voru þetta gríðarlegir kappar margir hverjir en ert þú (til dæmis) eitthvað minni? Við þessir eldgömlu höfum séð margan kappann koma og fara.

    #49333
    Hrappur
    Member

    já þið eruð svaka karlar

    #49334
    Sissi
    Moderator

    Iss – Ívar er bara Metro, situr með geltúpuna og snyrtir neglurnar meðan hann skrifar þetta. Er bara að reyna að halda reppinu.

    “Betra er manninum að hugsa háleitar hugsanir við grútartýru heldur en að flatmaga í rafmagnsljósum og verða flón.

    – Þórbergur Þórðarson”

    #49335
    Siggi Tommi
    Participant

    Voðalega er Sissi eitthvað menningarlegur.
    En við fyrirgefum honum það því hann er búinn að lýsa yfir áhuga á að koma með oss í Haukadalinn um helgina. Vonum að hann standi við það…
    Ætla ekki einhverjir að kíkja uppeftir um helgina?
    Stefnum á að gista á Stóra-Vatnshorni ef aðrir eru í gistihugleiðingum.
    Þar mætti eflaust dansa regndans á Adamsklæðunum einum saman og taka dýfingar í sköflunum með hjálm á höfði ef áhugi er á því.

    #49336
    1210853809
    Member

    Við erum tveir sem vorum allavega búnir að ræða við fólkið á Stóra-Vatnshorni og planið að leggja af stað í dag, vonandi verður af því ….!
    Það verða þá einherjir æi Haukadalnum um helgina, það er ánægulegt.

    #49337
    Siggi Tommi
    Participant

    Nei, heyrðu þá ætlum við eitthvað annað.
    Nei ég segi svona… :)
    Múahahah

    #49338
    Anonymous
    Inactive

    Hvernig er með Eyjafjöllin er þau ekki í þrusu aðstæðum???
    Veit einhver eitthvað um það???
    Olli

    #49339
    1210853809
    Member

    Sælir Haukadalsfarar,

    Smá vesen hjá mér, klifurfélaginn veikur og fer ekki með. Svo mig langaði að forvitnast hvort þið væruð margir og hvort möguleiki væri fyrir mig að fá að klifra með einhverjum ykkar, mjög leiðinlegt að þurfa að sitja heima !

    kveðja,
    Jósef

    #49340
    Sissi
    Moderator

    Ég, Tryggvi litli og Haukur förum líklega saman, þannig við hljótum að geta lánað þér Haukinn án þess að það sé staðfest.

    Bjallaðu bara seinnipartinn þegar þetta skýrist – 844-4983. Við ætlum svo að blasta til baka annað kveld og tékka á “Íslenzku ullinni” í Klefurhúsinu á sunnudaginn.

    Hils,
    Sissi

    #49341
    1210853809
    Member

    Takk Sissi,
    Ég er væntanlega á leið í klifur í Bottnsúlum, einhverja alpaleið á Syðstu súlu, en ég þakka samt boðið.
    Skemmtiði ykkur í Haukadalnum, sjáumst kannski á Íslensku ullinni..
    Jósef

    #49342
    2806763069
    Member

    Var að koma undan Eyjafjöllunum og það er fullt af ís. Paradísarheimtin í góðum aðstæðum og glitir í fallega fossa út um allt.
    Annars fór ég á Eyjafjallajökul með Hauki litla skrópagemmling og stærðfræðiséní og þaðan er það að frétta að hægt er að skíða viðstöðulaust af toppnum og niður í bíl. Sem sagt góður dagur á fjöllum.

    Svo skal ég reyna að vera góður í framtíðinni, það er bara svo fjandi erfitt og ekki nánda næri eins skemmtilegt.

    kv. Skicore

    P.s. ef þið farið upp þá eru rassbremsuförinn í brekkunni mér alls óviðkomandi og ég skil bara ekki í því hvernig þau komust inn á slóðina okkar.

    #49343
    Anonymous
    Inactive

    Þegar Eyjafjöllin eru í aðstæðum eins og núna slaga þau hátt upp í Haukadalinn. Aðkoman 5mín og bratt, langt og frábært klifur. Gott fyrir gamla og þunga klifrara.

    #49344
    Hrappur
    Member

    Olli minn þú mannst bara eftir að spar kraftana fyrir grjótgímuna á sunnudaginn. Þar er altaf pláss fyrir þreyttu þungu klifrarana, eða það vona ég allavegana sjálfs míns vegna!

Viewing 20 posts - 1 through 20 (of 20 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.