Re: Svar:Snjóflóðaýlar

Home Forums Umræður Almennt Snjóflóðaýlar Re: Svar:Snjóflóðaýlar

#54763
2806735959
Member

Hef ekki prófað nýja Ortovox S1 eða Pieps DSP og því eru upplýsingarnar kannski ekki mikils virði. Hef verið með Barryvox Pulse í notkun í þrjá vetur og kann mjög vel við hann. Mætti með hann á snjóflóðanámskeið þar sem flestir voru með eldri gerðir af mælum (Pieps 457 eða sambærilega). Það var áberandi miklu fljótlegra að leita með Barryvox mælinum. Þetta er svo til imbaheldur ýlir, allar helstu aðgerðir auðveldar og augljósar. Ýlirinn fer sjálfkrafa af “leit” yfir á “sendi” hef hann er hreyfingarlaus í einhvern tíma, þannig að ef það kemur annað flóð þá skiptir hann yfir á “sendi”, það eru fáir ýlar sem bjóða upp á þetta held ég. Barryvox Pulse hefur hlotið einhverja gagnrýni á að hægt sé að greina púls fórnarlamba (ef þau eru líka með Barryvox Pulse mæli) og forgangsraða greftri sem hugsanlega kemur niður á þeim sem ekki hafa slíkan mæli. Þessi fítus held ég að sé aldrei notaður nema hugsanlega ef allur hópurinn er með svona mæli (kannski gædaður hópur þar sem allir eru með eins ýli). Veit ekki hvar þessir ýlar fást hér, Safalinn er með umboðið. Ef þig langar til að prófa þennan mæli og finnur hann ekki út í búð er þér velkomið að hafa samband (magnusfjalar hja gmail punktur com). Það væri gaman að heyra hvað aðrir eru með.

Kveðja, Magnús