Re: svar: RedChili skórnir komnir

Home Forums Umræður Klettaklifur RedChili skórnir komnir Re: svar: RedChili skórnir komnir

#49104
2005774349
Member

Ég virðist kannski ekki alveg hlutlaus ef ég fer að segja frá hvernig skórnir hafa reynst, en hvað með það.

Ég er búinn að klifra í Voodoo skónum síðastliðið ár og eitthvað styttra í X-Cube skónum.
Þetta eru einu skórnir sem ég hef verið jafnánægður með og Five-ten klifurskóna.

Þeir passa vel á minn fót, en svo eru alltaf einhverjir sem eru í einhverju “lappaveseni”, og passa misvel í klifurskó.
Þeir eru fljótir að teygjast í notkunarstærð, og maður þarf ekki að kaupa þá eins geðveikt þrönga og var gert hér áður fyrr.

Þeir virka líka það vel í klettum að maður þarf varla að styðja höndunum í lengur.

Hjalti Rafn.