Re: svar: Hvar má ég tjalda?

Home Forums Umræður Almennt Hvar má ég tjalda? Re: svar: Hvar má ég tjalda?

#48041
2409632139
Member

Skoðaðu náttúruverndarlög, slóðin er http://www.natturuvernd.is/frames.htm
og þetta eru greinar 20-21. Set textann hér líka:

20. gr.
Heimild til að tjalda.
Við alfaraleið í byggð er heimilt, sbr. þó 2. málsl. 1. mgr. 14. gr., að tjalda hefðbundnum viðlegutjöldum til einnar nætur á óræktuðu landi, en leita skal leyfis landeiganda eða annars rétthafa áður en tjaldað er nærri bústöðum manna eða bæ og ætíð ef um fleiri en þrjú tjöld er að ræða eða ef tjaldað er til fleiri en einnar nætur.
Við alfaraleið í óbyggðum, hvort heldur er á eignarlandi eða þjóðlendu, er heimilt að setja niður hefðbundin viðlegutjöld.
Utan alfaraleiðar, hvort heldur er á eignarlandi eða þjóðlendu, er heimilt að setja niður göngutjöld nema annað sé tekið fram í sérreglum sem kunna að gilda um viðkomandi landsvæði.
Á ræktuðu landi, sbr. 7. tölul. 3. gr., má aðeins slá upp tjöldum með leyfi eiganda þess eða rétthafa.
Við tjöldun skal ætíð virða ákvæði 17. gr. um bann við akstri utan vega, svo og gæta fyllsta hreinlætis og varúðar á tjaldstað.

21. gr.
Takmarkanir á heimild til að tjalda.
Þegar sérstaklega stendur á getur eigandi lands eða rétthafi takmarkað eða bannað að tjöld séu reist þar sem veruleg hætta er á að náttúra landsins geti beðið tjón af.
Hafi eigandi lands eða rétthafi útbúið sérstakt tjaldsvæði á landi sínu er honum heimilt að beina fólki þangað og taka gjald fyrir veitta þjónustu þar.