Re: svar: Fyrir þá sem eru læsir….

Home Forums Umræður Skíði og bretti Hardcore í tjaldi Re: svar: Fyrir þá sem eru læsir….

#54160

Fyrir hönd stjórnar, ritstjórnar ársritsins og áhugasamra félaga Ísalp… óska ég hér með eftir að Kalli og Árni skrifi grein í næsta ársrit um snjóhúsagerð við íslenskar aðstæður. Held það sé engin spurning að sú grein yrði mikið lesin.

Ekkert að því að byggja hana að einhverju leyti á gömlu greininni, eflaust atriði þar sem eru í fullu gildi. En jafn vafalítið er fullt af nýjungum sem má greina frá, sem sagt uppfæra hana með nýjustu trendunum.

Myndir og/eða teikningar væri gaman að hafa með.

Hlakka til að lesa…

Koma svo allir, skorið á kappana að láta verða af þessu.