Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Enn eitt dauðsfall í háfjallaskíðamennsku › Re: Re:Enn eitt dauðsfall í háfjallaskíðamennsku
Erfitt að horfa á eftir Fredrik Ericsson. Hann var hér á Íslandi í annað skiptið í vor að skíða á Tröllaskaganum. Hann var með tökuliði frá fyrirtækinu Freeradicals að vinna að kafla til að setja í næstu skíðamynd fyrirtækisins. Ég vann með Fredrik í nokkra daga og eftir situr minning um jarðbundin og hjartahlýjan einstakling sem að heillaði alla þá sem hann hitti með góðri nærveru. Hann talaði um að koma aftur til Íslands næsta vor til að skíða meira því Ísland togaði í hann.
Það má sjá myndir af Fredrik frá því í vor á þessum link: http://gudmundurtomasson.photoshelter.com/gallery/Arctic-Heli-Skiing-2010/G0000NKSiUYHGTGE/
Nánari lýsing á því sem gerðist:
http://www.gerlinde-kaltenbrunner.at/en/category/expeditionstagebuch/k2-expedition-2010
Gummi