Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Aðstæður. Taka 2 › Re: Re: Aðstæður. Taka 2
30. November, 2010 at 09:15
#55881
Sissi
Moderator
Flott, vona að önnur fyrirtæki og björgunarsveitirnar, sem og hinn almenni klifrari, taki svona vel í þetta.
Býð mig fram í stigamission ef einhver handlaginn fæst í þetta. Vara samt við, ég og Góli gerðum gat á hausinn á yfirsmiðnum, Gísla Sím, síðast þegar við fengum að smíða eitthvað.
Svo er kannski allt í lagi að segja frá því, fyrst formaðurinn er ekki búinn að því, að Freyr og Stymmi bættu í ankerin og nú eru tvö tveggja bolta ankeri með keðju í Spora, svo menn ættu að geta sigið ósmeykir.
Sissi