Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísklifuraðstæður 2015-2016 › Reply To: Ísklifuraðstæður 2015-2016
29. January, 2016 at 14:32
#60531
Siggi Richter
Participant
Við skutumst fjórir inn í Kjós núna á þriðjudaginn, nær allar leiðir í neðri hlutum Hvalfjarðar voru komnar á byrjunarreit eftir rigningarnar. Það var ekki nema innst í Kjósinni, í Spora og í leiðunum í hlíðinni á móti þar sem eitthvað hafði lifað af. Við enduðum á að rölta upp í Spora gilið, þar sem eina leiðin sem var í tiltöluluga heilu lagi var stutta leiðin innst í gilinu sem er ekki í leiðarvísinum. Leiðin var að vísu frosin og meiglak, en leiðirnar þarna gætu verið orðnar fínar eftir frostið núna næstu daga.
Annars virtust leiðir ofar í fínum málum, eins og Eilífsdalnum.
- This reply was modified 8 years, 2 months ago by Siggi Richter.
- This reply was modified 8 years, 2 months ago by Siggi Richter.