Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › klifur í dag › Re: Svar:klifur í dag
4. January, 2010 at 14:04
#54984
Skabbi
Participant
Freyr Ingi Björnsson skrifaði:
Quote:
Hafa menn ekki verið að brölta upp á höftin á leiðinni upp að Spora sjálfum?
Ég held að sá neðsti (og stærsti) beri hið ómþýða nafn Mígandi. Einn af mörgum á landinu reyndar sem ber þróaðri kímnigáfu íslenskra ísklifrara fagurt vitni.
Ég hef farið upp eftir læknum nokkrum sinnum, tekið öll höftin á leiðinni. Það er þrælgaman. Fyrst þegar við Sissi og Bjöggi “fundum” Spora komum við einmitt upp eftir læknum. Spori kom ekki í ljós fyrr en við stóðum næstum undir honum.
Allez!
Skabbi