Home › Forums › Umræður › Almennt › Kárahnjúkar- nei takk! › Re: svar: Kárahnjúkavirkjun nei takk! Kárahnjúkar já takk!
OK – eins og ég hef sagt áður, voða fínt að sýna opinberum aðilum smá aðhald og fínt að berjast á móti því sem maður er ekki sáttur við.
En af hverju fara allir resourcar í að berjast á móti þessari virkjun en sem er langt komin? Ég geri mér grein fyrir því að menn eru ekki sáttir við þetta, en heldur einhver í alvöru að þessi framkvæmd verði stöðvuð? Ætti þetta ekki að vera meira táknrænt til að sýna að menn séu ekki búnir að gleyma þessu?
Á meðan er verið að klippa útivistarsvæði Reykvíkinga á Hellisheiði í 1000 mola, raskið þar er margfalt það sem talað var um. Það er hræðilegt að horfa upp á þetta.
Einnig er verið að byggja jarðgöng í Héðinsfirði sem eru harmleikur og algjörlega absúrd framkvæmd frá náttúruverndar- og peningasjónarmiðum. Sjálfsagt óarðbærasta framkvæmd allra tíma á Íslandi.
Meðan allt púðrið fer í Kárahnjúka sigla svona slys, sem enn er hægt að stöðva, undir radarinn.
Það finnst mér slæmt.
Kveðja,
SF