Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Myndir frá Ísklifurfestivali › Re: svar: Myndir frá Ísklifurfestivali
20. February, 2006 at 15:08
#50287

Inactive
Það hefur nú oft verið gert grín af mér fyrir að aulýsa Eilífsdalinn um of í gegnum tíðina og er ekki laust við að maður fái smá uppreysn æru. Málið er að margir líta á Eilífsdalinn hornauga vegna snjóflóðahættu þar sem þessi staður er á venjulegum vetri(fyrir 1999) alger snjóakista. Ef snjóar eitthvað að ráði þarna eru menn sérstaklega beðnir að vara sig og halda sig algerlega frá öllum rásum og giljum. Annað er það sem hefur haldið mönnum frá dalnum er óþægilega langur gangur ef maður þarf að þramma inn allan dalinn.
Olli