Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Aðstæður í Reykjavík
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
3. February, 2011 at 09:57 #47439
0801667969MemberFór í Hljómskálagarðinn í gærkveldi. Flott gönguskíðafæri. Notaði bláan. Skíðalyftur í borginni eru hins vegar lokaðar. Snjóleysi borið við. Hélt nú að þegar gras er undir þyrfti nánast engan snjó. En svona er Reykjavík í dag.
Kv. Árni Alf.
3. February, 2011 at 20:08 #56279
Siggi TommiParticipantTalandi um það, hefur einhver séð til ísa í nágrenni Rvk eftir hlákuna?
Enginn átt leið framhjá Eilífsdal eða séð hvernig Tvíbbinn er að bunkast í fjúkinu?3. February, 2011 at 21:01 #56280
0801667969MemberMætti svo sem koma fram að útlit er fyrir að við opnum í Bláfjöllum á laugardaginn. Göngubraut var lögð í dag og renningur af fólki. Hér eru útsynningsél, bjart á milli og talsverður lágarenningur. Eitt fallegasta vetrar- og skíðaveður sem til er.
Kv. Árni Alf.
5. February, 2011 at 09:12 #56283
0801667969MemberLaugard.5 feb. kl.9:00
Það má segja að hér í Bláfjöllum sé allt á kafi í snjó. Enn er mikil ofankoma og skafrenningur svo lokað er í dag. Vegurinn hér upp úr er meira að segja aðeins jeppafær sem er sjaldgæft. Frábær dagur til að fara út að leika sér en hafa snjóflóðahættu í huga sem er eðlilega mikil.
Kv. Árni Alf.
5. February, 2011 at 16:43 #56284
SkabbiParticipantHvað segiru Árni, e-r líkur á því að það verði opið á morgun?
Skabbi
5. February, 2011 at 18:27 #56285
0801667969MemberHæfilega bjartsýnn á morgundaginn. Smálægð á Faxaflóa gerir allar spár mjög ónákvæmar. Í gær var t.a.m. spáð hæglætisveðri og úrkomulausu. Reyndin varð allt önnur. Spár eru spár en við reynum allt til að opna.
Færði út kvíarnar í dag og fór alla leið í Heiðmörkina á skíði. Fyrst yfir mjög úfið hraun og svo yfir golfvöll. Svo inn með Vífilsstaðahlíðinni inn að Búrfellsgjá umvafinn ilmi barrtrjánna.
Af skíðalyftum innan borgarmarkanna er það að frétta að það á að reyna að opna á mánudaginn. Mér sýnist skv. veðurspá að mestallur snjór verði farinn úr borginni í síðasta lagi á miðvikudag. Dálítið dæmigert fyrir Reykjavíkurborg.
Kv. Árni Alf.
6. February, 2011 at 18:43 #56286
SissiModeratorDagurinn í dag var eðall. Gott færi, mjög lítið skyggni. En það hefur þó þau jákvæðu hliðaráhrif að maður getur þrætt ferskt púður ferð eftir ferð án þess að fólk fatti það.
Sýnist að morgundagurinn verði alls ekki síðri, gæti sést til sólar og svona.
Sissi
8. February, 2011 at 10:56 #56298
1012803659ParticipantVið fórum nokkur á Móskarðshnjúkana í gær.
Það er töluvert af snjó þarna uppfrá, og alveg hægt að þræða gil og skorninga, en það vantar base.
Sárt að skíða niður úr lausasnjónum niður í grjótið.
Vonum að hláka næstu daga búi til fínan base!
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.