Home › Umræður › Umræður › Skíði og bretti › Telemark festivalið
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
15. mars, 2010 at 09:15 #47080
0704685149MeðlimurSæl,
Við viljum þakka öllum fyrir komuna og hjálpina.
Nú í ár, eins og síðustu ár, hafa margar hendur hjálpast að til að gera
Festivalið sem skemmtilegast. Við vonum að allir hafi skemmt sér vel.kveðja
Bössarnir og Valli15. mars, 2010 at 09:41 #55335
margadaMeðlimurTakk fyrir mig!
Hér má sjá myndir úr fjallinu á heimasíðu Vetraríþróttamiðstöð Íslands
http://vmi.is/is/gallery/vh_2010/telemarkhelgin/17. mars, 2010 at 10:37 #55338
GoliMeðlimurÞetta var mjög skemmtilegt festival, keppnin í traustum höndum, stemmningin frábær og allir kátir. Saknaði þess reyndar að sjá dvergana í fjallinu svo að staðið væri við þetta mittisdjúpa….
Apré ski-ið var geggjað og hátíðin í torfbænum skemmtileg nýbreytni. Það sem helst má setja út á var verðlaunakynnirinn, sem var mjög einbeittur og hvass ef ekki bara leiðindagaur. Fangbrögð við Evrópudómarann réttu það allt af, en svona til að rétta misskilning af þá voru þau til gamans gerð og glímumenn báðir hinir kátustu að fangbrögðum loknum.
Takk öll fyrir skemmtilega samveru !
Góli, Maggý og restin af Team Garðabær!17. mars, 2010 at 10:37 #55339
GoliMeðlimurp.s. gaman væri að sjá fleiri myndir……
17. mars, 2010 at 18:43 #55340
0907725389MeðlimurÉg þakka kærlega fyrir góða skemmtun um helgina. Mér fannst skíðaskálastemmingin í torfbænum í Hrafnagili sérstaklega viðeigandi. Ég setti nokkrar myndir á netið: http://picasaweb.google.com/jonhroi/Telemarkfestival2010?feat=directlink
Kveðja,
Jón Hrói -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.