Home › Umræður › Umræður › Almennt › Þegar fyrstu haustlægðirnar skekja landið kviknar líf í Íslenska Alpaklúbbnum
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
17. september, 2008 at 11:07 #46927
BjörkParticipantÍ þessum skrifuðu orðum flæða ársrit og skírteini í gegnum prentvélar….
Á morgun fimmtudaginn 18. september verður opið hús í félagsheimili Ísalp Skútuvogi 1G (í klifurhúsinsu). Nýjir og gamlir félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna. Stjórnin mun rifja upp atburði síðasta veturs í máli og myndum og metnaðarfull dagskrá komandi vetrar verður kynnt. Þeir sem greitt hafa félagsgjald þessa árs ganga svo út með gljáandi félagsskírteini og sjóðheitt ársrit, saddir og hamingjusamir eftir að hafa gætt sér á kruðeríi og þambað kaffi í boði klúbbsins.
Dagskráin hefst kl. 20:00
Vonandi sjáum við sem flesta….
24. september, 2008 at 22:26 #53066
Gummi StParticipanthvernig geta vitleysingar eins og ég sem datt í huga að vera að vinna frameftir þennan dag nálgast ársritið ?
24. september, 2008 at 22:36 #53067
SkabbiParticipantHæ
Vitleysingar eins og þú verða bara að bíða þangað til þeir fá ársritið, ásamt félagsskírteini, inn um lúguna, sem verður vonandi fljótlega eftir helgi.
Allez!
Skabbi
25. september, 2008 at 08:26 #53068
BjörkParticipantÞað verður líka hægt að nálgast ritið á búnaðarbasarnum í kvöld.
26. september, 2008 at 03:33 #53069
0703784699Meðlimur…ef ég borga árgjaldið fæ ég það þá sent hinum megin á hnöttinn? Einn voða spenntur….
28. september, 2008 at 14:13 #53070
BjörkParticipantjá Himmi ég skal senda þér eitt eintak ef þú borgar árgjaldið.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.