Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Aðstæður á Vesturlandi
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
12. janúar, 2008 at 19:58 #45428
Siggi TommiParticipantVar að fá hringingu frá Skabba, Bjögga og Gulla sem voru í Haukadal.
Þeir fóru í Skálargil og þar var flest nema Trommarinn vel bunkað og meira en t.d. á topo myndunum.
S.s. fullt af ís og um að gera að skella sér ef menn komast áður en hlánar aftur.Síðan fóru víst Guðjón Snær, Olli og Palli í Austurárdal.
Þar var ekki jafn mikið af ís og í Haukadalnum en þó flestar línur klifranlegar. Minna en menn bjuggust við þó.Fór enginn neitt styttra, t.d. í Esjuna eða Hvalfjörðinn?
12. janúar, 2008 at 22:28 #52186
BjörkParticipantÉg, Sædís og Kristín Martha eyddum deginum í Tindfjöllum í dag. Þar upplifði maður það sama og svo oft í vetur, miklu minni snjór en maður átti von á! En veðrið gerist ekki betra eins og það var í dag, alveg heiðskýrt og logn.
Skíðuðum niður Saxa og Bláfell og einhverjar brekkur sem við fundum á leiðinni. Bláfell var það besta.
Maður kemst á jeppling að neðsta skála.13. janúar, 2008 at 12:30 #52187
ABParticipantVið Eyþór fórum Spora í Kjósinni. Minni ís en við bjuggumst við en leiðin er vel fær og ísinn frábær að gæðum.
Við litum inn í Elífsdal og þar er allt í aðstæðum en Tjaldið nær ekki saman (Stefán Hús sýndi reyndar að það skiptir víst litlu).
Lítill ís í Búahömrum.
Svo sáum við þrjá kappa á leið upp brekku í Kjósinni. Þeir voru á rauðleitum jeppa. Hverjir voru það og hvað voru þeir að gera?
Kveðja,
AB
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.