Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Klettaklifurfestival 2003
- This topic is empty.
- 
		HöfundurSvör
- 
		
			
				
31. júlí, 2003 at 12:10 #44920 2003793739Meðlimur 2003793739MeðlimurÁkveðið hefur verið að halda Klettaklifurfestival 2003 um næstu helgi, Verslunarmannahelgina á Hnappavöllum. Vegna veðurs var festivalinu frestað í júlí en nú verður þessu ekki frestað lengur. Verslunamannahelgin hefur ávallt verið mikil klifurhelgi hjá klifrurum og oft margmenni á Hnappavöllum gegnum árin. Það er því tilvalið að halda klettaklifurfestivalið um þess helgi og góð stemmning í fólki. Farið verður úr bænum á einkabílum og slegið upp tjaldbúðum á tjaldstæðinu við Hnappavallahamra. Dagskráin yfir helgina verður með hefðbundnu sniði. 
 Föstudagur:
 Keyrt austur – uppsetning tjalda.
 Laugardagur:
 Morgunmatur – Klifur – Hádegismatur – Klifur – Kaffi – Klifur – Grill.
 Sunnudagur:
 Morgunmatur – Klifur – Hádegismatur – Klifur – Kaffi – Klifur – Grill.
 Mánudagur:
 Morgunmatur – Klifur – Hádegismatur – Klifur – Kaffi – Klifur og síðan keyrt í bæinn.Þessi helgi er sérstaklega hugsuð fyrir hina nýju kynslóð klifurfólks sem hefur verið sívaxandi í vetur og eru allir velkomnir. 
 Nú er um að gera að fara skipuleggja hvaða leiðir á að sigra um helgina og leggja sig allan fram.
 Ef verðrið klikkar þá er fullt annað hægt að gera á þessum frábæra stað Hnappavöllum.
 Því fólki sem vantar far austur, upplýsingar um staðsetningu eða einhverjar aðrar upplýsingar geta hringt í mig, Halli, 895-2250.Sjáumst á Hnappavöllum um helgina. 
 Fyrir hönd Klifurhússins
 Halli
- 
		HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.
