- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
11. August, 2009 at 16:58 #47511
Gummi StParticipantKomið sæl,
Ég er nú ekki vanur að vera að henda inn einhverjum auglýsingum hér inn og hálf skammst mín fyrir það. En mér datt samt í hug að mörg ykkar hefðu gaman af því að sjá þetta.
Ég var að búa til myndaseríu “Vatnajökull í svarthvítu”. Hægt er að skoða seríuna á: http://www.climbing.is/lesa_frett.php?cat=3&id=136
Njótið vel.
kv. Gummi St.
12. August, 2009 at 14:51 #54406
SkabbiParticipantHæ
Margar mjög skemmtilegar myndir í þessari seríu. Takk fyrir að pósta þessu Gummi.
Allez!
Skabbi
12. August, 2009 at 17:50 #54407
Anna GudbjortMemberÞegar ég skoða myndirnar langar mig mest að hrinda öllu af skrifborðinu mínu með dramatískum hætti, hlaupa út af skrifstofunni, skella á eftir mér hurðum og bruna austur ekki seinna en núna.
Stórglæsilegar myndir, takk fyrir að deila þeim.
12. August, 2009 at 21:26 #54408
AnonymousInactiveÞú klikkar ekki á ljósmyndunum Gummi frekar en í leiðsögninni. Flottar myndirnar frá Hrútfjallstindum.
12. August, 2009 at 22:13 #54409
SissiModeratorÞetta eru helvíti skemmtilegar myndir, fínt að hafa eitthvað að skoða svona á kvöldin. Smá samviskubit samt í gang yfir því að hafa hjólað Neshring í kvöld en ekki staðið á flottum tindi í Öræfum

Sissi
12. August, 2009 at 22:54 #54410
0309673729ParticipantMagnaðar myndir. Vel til fallið að hafa þær í svart/hvítu.
Helgi Borg
13. August, 2009 at 11:28 #54411
stebbiMemberJám – að sópa öllu af skrifborðinu og hlaupa á fjöll er klárlega rétti leikurinn
14. August, 2009 at 00:07 #54412
3110665799MemberGlæsilegar myndir Gummi!
17. August, 2009 at 17:48 #54424
Gummi StParticipantTakk fyrir
23. August, 2009 at 19:11 #54440
0111823999MemberSammála Önnu Guð! Þetta eru ótrúlega flottar myndir af fallegasta svæði landsins..
23. August, 2009 at 22:35 #54441
Björgvin HilmarssonParticipantSkil ekki hvaða bull þetta er í þér að segjast skammast þín fyrir að vera að “auglýsa”. Auðvitað á að benda á svona fjallaseríur. Töff stöff.
25. August, 2009 at 22:58 #54444
2802693959MemberVirkilega skemmtilegar myndir Gummi.
Vinsamlega gerðu meira af þessu.
kv, Jón Gauti -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.