Vatnajökull í s/h

Home Forums Umræður Almennt Vatnajökull í s/h

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47511
    Gummi St
    Participant

    Komið sæl,

    Ég er nú ekki vanur að vera að henda inn einhverjum auglýsingum hér inn og hálf skammst mín fyrir það. En mér datt samt í hug að mörg ykkar hefðu gaman af því að sjá þetta.

    Ég var að búa til myndaseríu “Vatnajökull í svarthvítu”. Hægt er að skoða seríuna á: http://www.climbing.is/lesa_frett.php?cat=3&id=136

    Njótið vel.
    kv. Gummi St. prev_Vatnajokulseria.jpg

    #54406
    Skabbi
    Participant

    Margar mjög skemmtilegar myndir í þessari seríu. Takk fyrir að pósta þessu Gummi.

    Allez!

    Skabbi

    #54407

    Þegar ég skoða myndirnar langar mig mest að hrinda öllu af skrifborðinu mínu með dramatískum hætti, hlaupa út af skrifstofunni, skella á eftir mér hurðum og bruna austur ekki seinna en núna.

    Stórglæsilegar myndir, takk fyrir að deila þeim.

    #54408
    Anonymous
    Inactive

    Þú klikkar ekki á ljósmyndunum Gummi frekar en í leiðsögninni. Flottar myndirnar frá Hrútfjallstindum.

    #54409
    Sissi
    Moderator

    Þetta eru helvíti skemmtilegar myndir, fínt að hafa eitthvað að skoða svona á kvöldin. Smá samviskubit samt í gang yfir því að hafa hjólað Neshring í kvöld en ekki staðið á flottum tindi í Öræfum ;)

    Sissi

    #54410
    0309673729
    Participant

    Magnaðar myndir. Vel til fallið að hafa þær í svart/hvítu.

    Helgi Borg

    #54411
    stebbi
    Member

    Jám – að sópa öllu af skrifborðinu og hlaupa á fjöll er klárlega rétti leikurinn :)

    #54412
    3110665799
    Member

    Glæsilegar myndir Gummi!

    #54424
    Gummi St
    Participant

    Takk fyrir

    #54440
    0111823999
    Member

    Sammála Önnu Guð! Þetta eru ótrúlega flottar myndir af fallegasta svæði landsins..

    #54441

    Skil ekki hvaða bull þetta er í þér að segjast skammast þín fyrir að vera að “auglýsa”. Auðvitað á að benda á svona fjallaseríur. Töff stöff.

    #54444
    2802693959
    Member

    Virkilega skemmtilegar myndir Gummi.
    Vinsamlega gerðu meira af þessu.
    kv, Jón Gauti

Viewing 12 posts - 1 through 12 (of 12 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.